Byko
Byko

Fréttir

Ingvi Þór settur varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja
Mánudagur 23. mars 2026 kl. 14:14

Ingvi Þór settur varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja

Ingvi Þór Hákonarson hefur verið settur tímabundið í stöðu varaslökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Suðurnesja. Ingvi hefur starfað hjá slökkviliðinu frá árinu 2007 og býr yfir víðtækri reynslu innan liðsins, en síðast gegndi hann stöðu sviðsstjóra útkallssviðs.

Hann hefur lokið framhaldsmenntun í slökkviliðsfræðum, stjórnendaréttindum og eldvarnareftirliti frá Brunamálaskóla HMS. Þá er Ingvi einnig menntaður bráðatæknir frá NMETC í Boston. Með setningu hans er tryggð áframhaldandi reynsla og fagþekking í stjórnendateymi Brunavarna Suðurnesja.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir