Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Viktor og Heiða unnu til verðlauna í Belgíu
Mánudagur 23. mars 2026 kl. 11:22

Viktor og Heiða unnu til verðlauna í Belgíu

Viktor Berg Stefánsson og Heiða Dís Helgadóttir unnu til verðlauna á sterku móti í taekwondo um helgina. Belgian Open mótið er stórt alþjóðlegt mót með um 1300 keppendur sem koma frá öllum heimshornum. Á því voru sterkir keppendur og landslið frá öllum heimsálfum en þetta er eitt af sterkari opnum mótum í heiminum. 

Heiða og Viktor sem keppa í cadet ungmennaflokki 12-14 ára eru með efnilegri keppendum landsins í þessum aldursflokki. Bæði æfa þau með Keflavík. 

Viktor vann til bronsverðlauna í drengjaflokki -37 kg flokki eftir frábæra frammistöðu gegn sterkum keppendum og Heiða vann til gullverðlauna í stúlknaflokki+59kg. Bæði stóðu þau sig einstaklega vel á þessu sterka móti.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir