Landsliðstreyja handa manninum með hattinn: Alexander Birgir gladdur
Góðgerðarverkefnið „Gleðjum saman“ heldur áfram að útbreiða birtu og gleði, en í gærkvöldi var 38. treyjan í verkefninu afhent eftir landsleik Íslands og Portúgal á Ásvöllum. Það var landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir sem hitti Alexander Birgi Björnsson og afhenti honum áritaða landsliðstreyju við mikla ánægju.
Alexander Birgir, sem margir þekkja úr íþróttaheiminum á Suðurnesjum sem „manninn með hattinn“, er 25 ára gamall og með einhverfu. Hann hefur tekist á við margvíslegar áskoranir á lífsleiðinni, þar á meðal missi bróður síns í sviplegu slysi árið 2010 og rýminguna frá heimili sínu í Grindavík vegna náttúruhamfara. Þrátt fyrir þetta hefur hann látið að sér kveða í samfélaginu, en hann hélt meðal annars styrktartónleika árið 2014 fyrir Einhverfusamtökin og Birtu, félag foreldra sem misst hafa börn sín skyndilega.
Körfuboltinn hefur spilað stórt hlutverk í lífi Alexanders, en hann hefur aðstoðað meistaraflokka Grindavíkur frá 14 ára aldri. Íþróttirnar reyndust honum og fjölskyldu hans ómetanlegt akkeri eftir rýminguna úr Grindavík og sýna hve miklu má áorka þegar samfélagið tekur höndum saman. Aðstandendur verkefnisins segja Alexander skólabókardæmi um þann styrk sem býr í fólki þegar því er mætt af skilningi og stuðningi.
Verkefnið „Gleðjum saman“ byggir á framlagi leikmanna sem gefa sér tíma til að gleðja aðra og verða fleiri treyjur afhentar á næstu vikum. Aðstandendur hvetja fólk til að kynna sér starf Einhverfusamtakanna og Birtu, ásamt því að senda inn ábendingar um hversdagshetjur eða einstaklinga sem glíma við veikindi eða fötlun og eiga skilið uppörvun. Hægt er að senda tilnefningar á samfélagsmiðla verkefnisins eða beint á Orra Rafn Sigurðarson.






