Ólafur sæmdur gullmerki Knattspyrnusambandsins
Á aðalfundi Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, þann 11. mars síðastliðinn, var Ólafur Bjarnason sæmdur gullmerki KSÍ. Halldór Breiðfjörð Jóhannsson í stjórn KSÍ og Rúnar V. Arnarson í kjörnefnd KSÍ veittu Ólafi viðurkenninguna.
Um störf Ólafs segir í tilkynningu frá KSÍ:
„Ólafur Bjarnason hefur um árabil verið einn af traustum burðarásum í starfi knattspyrnudeildar Keflavíkur. Hann sat í stjórn eða varastjórn deildarinnar í rúm tuttugu ár og lét af stjórnarstörfum á aðalfundi deildarinnar þann 17. febrúar síðastliðinn.
Hann hóf stjórnarstörf árið 2002 og gegndi þar ýmsum hlutverkum, meðal annars sem varaformaður um tíma. Eftir stutt hlé sneri hann aftur til starfa árið 2019 og sinnti áfram stjórnarstörfum til ársins 2025. Í gegnum árin hefur hann lagt sitt af mörkum af festu, ábyrgð og mikilli hollustu við félagið og knattspyrnuna.
Framlag hans til knattspyrnunnar í Keflavík er bæði langt og verðmætt og hefur starf hans verið viðurkennt með ýmsum heiðursmerkjum í gegnum árin.“






