Skógræktarfélagið skilar Vatnsholtinu til bæjarins eftir 20 ára uppgræðslu
Aðalfundur Skógræktarfélags Suðurnesja verður haldinn mánudaginn 30. mars kl. 17:30 í fyrirlestrarsal Fimleikaakademíunnar (Sunnubraut 34). Á fundinum verða stór tímamót rædd, en félagið er nú að ljúka 20 ára farsælu samstarfi við Reykjanesbæ um uppgræðslu og umsjón Vatnsholtsins.
Svæðið, sem hefur tekið stórstígum breytingum á undanförnum áratugum með markvissri ræktun og uppbyggingu grænna svæða, verður formlega afhent Reykjanesbæ þann 16. júní 2026. Skógræktarfélagið hefur haft umsjón með svæðinu síðan samkomulag þar um var undirritað árið 1996 en uppgræðslustarfið hefur staðið yfir í yfir tvo áratugi.
Íbúar móta framtíðina
Í tengslum við afhendinguna er hafin vinna við að móta framtíðarstefnu fyrir Vatnsholtið. Reykjanesbær hefur þegar leitað til íbúa eftir hugmyndum og sjónarmiðum um þróun svæðisins á næstu árum. Opinn hugmyndavefur var opinn í nóvember sl. þar sem íbúar gátu lagt fram tillögur sínar.
Fjölskyldur voru sérstaklega hvattar til að ræða framtíð svæðisins og leggja fram sameiginlegar hugmyndir, enda er markmiðið að safna fjölbreyttum og praktískum ábendingum sem nýtast við gerð framtíðarsýnar og skipulags Vatnsholtsins.
Kynning á niðurstöðum
könnunar á aðalfundi
Á aðalfundi Skógræktarfélagsins á mánudaginn mun Reykjanesbær kynna niðurstöður þessarar hugmyndasöfnunar og könnunar um Vatnsholtið. Þetta er einstakt tækifæri fyrir félagsmenn og áhugafólk um skógrækt og útivist á Suðurnesjum til að kynna sér hvað íbúar sjá fyrir sér varðandi framtíð þessa mikilvæga græna svæðis.
Leitað að nýju fólki í stjórn
Auk venjulegra aðalfundarstarfa og kynningarinnar á Vatnsholtinu auglýsir Skógræktarfélagið eftir nýju fólki í stjórn. Félagið óskar eftir áhugasömum, hressum og hugmyndaríkum einstaklingum sem vilja taka þátt í öflugu starfi, hafa áhrif og leggja sitt af mörkum til skógræktar og útivistar á svæðinu. Engin sérstök reynsla er skilyrði, heldur áhugi og vilji.
Allir eru velkomnir á fundinn til að kynna sér starfið, taka þátt í umræðum og vera með í að móta framtíð félagsins.






