Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Flauels jakkaföt og kalt borð
Fermingardrengurinn með foreldrum, ásamt ömmu og afa beggja megin.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 15. mars 2026 kl. 06:49

Flauels jakkaföt og kalt borð

„Þetta var skemmtilegur og góður dagur, 2. apríl 1978, og flott fermingarveisla með köldu borði sem var vinsælt þá,“ segir Kjartan Steinarsson bílasali þegar hann rifjar upp fermingu sína fyrir nærri hálfri öld síðan.

„Ég fékk flott úr frá foreldrum mínum sem keypt var í Fríhöfninni en það þurfti auðvitað að smygla því niður eftir. Svo fékk ég aðallega peningagjafir. Veislan sem var haldin heima á Eyjavöllum 5 í Keflavík var skemmtileg, fjöldi ættingja og vina komu. Á þeim tíma var boðið upp á sígarettur og vindla og það mátti sjá reykinn liðast um húsið,“ segir Kjartan og hlær þegar hann rifjar þetta upp.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Skellinaðra fyrir bræðurna

Ásgeir bróðir hans fermdist ári síðar og hann fékk líka peningagjafir. Þeir bræður ákváðu að nota hluta þeirra til að kaupa sér saman skellinöðru. Og ekki bara það, Ásgeir notaði ári síðan í sinni fermingu sömu fermingarföt og Kjartan.  „Áhugi okkar lá í skellinöðrum og kannski sérstaklega hjá mér og ég eignaðist þrettán mótorhjól á næstu árum.“

En man Kjartan eftir fermingarfötunum sem hann var í á fermingardaginn?

„Já, ég var í flauelsjakkafötum frá Karnabæ. Þau voru vinsæl á þessum tíma.“

En hafði fermingin áhrif á þig?

„Mér fannst fermingarfræðslan góð sem ég sótti hjá Ólafi Oddi en hún fór fram í gamla Kirkjulundi. Ég játaði kristna trú og á þessum tíma var ég duglegur í starfinu hjá KFUM, sótti fundi og félagsskap þar. Ég hef alltaf verið kristinnar trúar þó að ég hafi aldrei verið nógu duglegur að sækja kirkju. Þetta starf mótaði mig í að vera góð manneskja og líta á annað fólk sem jafningja. Ég hef alltaf gert það.“

Fimm ættliðir

Þá nefnir Kjartan að lokum að eitt sé mjög minnistætt frá fermingunni en það er að í henni voru fimm ættliðir sem er afar sjaldgæft. Það kom í gegnum ættlegg Birnu móður hans, en auk hennar mættu amma Kjartans, langaamma og langalangaamma hans.

...Ég hef alltaf verið kristinnar trúar þó að ég hafi aldrei verið nógu duglegur að sækja kirkju. Þetta starf mótaði mig í að vera góð manneskja og líta á annað fólk sem jafningja. Ég hef alltaf gert það...