Byko
Byko

Mannlíf

Draumagjöfin var þverflauta og heimferð á Saga Class
Sunnudagur 22. mars 2026 kl. 09:17

Draumagjöfin var þverflauta og heimferð á Saga Class

Berglind Ásgeirsdóttir á 30 ára fermingarafmæli í ár, en hún fermdist í Keflavík þann 24. mars árið 1996. Þegar hún lítur til baka stendur metnaður foreldranna upp úr, en þau tóku húsið í gegn og héldu hlýlega veislu þar sem allt var heimatilbúið. Dagurinn var upphafið að miklu ferðalagi, bæði í tónlistinni og innan félagsstarfs, en óvænt ævintýri í Danmerkurreisu og dýrmæt kynni í Vatnaskógi mótuðu hana til frambúðar.

Prestar: sr. Sigfús B. Ingvason og sr. Ólafur Oddur Jónsson

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Hvaða minningar standa sterkast eftir frá fermingunni þinni og fermingarundirbúningnum?

Það sem stendur sterkast eftir er hvað foreldrar mínir lögðu mikla vinnu í allt í kringum ferminguna. Þau tóku húsið í gegn og héldu veisluna heima og mamma eldaði og bakaði allt sem var á boðstólum. Það var gaman að finna hvað þau lögðu mikinn metnað í daginn og hversu hlýlegt og persónulegt andrúmsloftið varð fyrir vikið.

Fermingarfræðslan var líka skemmtileg og ólík venjulegu skólastarfi. Það var gaman að fara í gegnum þetta með jafnöldrum mínum, ræða lífið og tilveruna og velta fyrir sér gildum, ábyrgð og framtíðinni. Þetta var bæði lærdómsríkt og eftirminnilegt tímabil.

Í heildina var þetta jákvætt ferli, góð blanda af fjölskyldustemningu og innihaldsríkum undirbúningi.

Hvernig fannst þér sjálfri fermingardagurinn þinn?

Dagurinn var langur, en á góðan hátt. Ég vaknaði eldsnemma eftir að hafa sofið með rúllur í hárinu, sem var frekar óþægilegt, og ég var bæði spennt og dálítið stressuð. Í kirkjunni var ákveðin hátíðleg spenna, sérstaklega þegar við fórum hvert og eitt með fermingarversið okkar upphátt. Þá fann maður að þetta var stór stund.

Síðan tók veislan við heima þar sem ég hitti marga ættingja, suma sem ég þekkti vel og aðra sem ég kannaðist minna við. Það var sérstakt að vera miðpunktur dagsins en líka notalegt að sjá hvað margir komu til að fagna með okkur.

Var fermingardagurinn eins og þú hafðir ímyndað þér?

Já, nokkurn veginn. Hann var kannski aðeins lengri og meira krefjandi en ég hafði gert ráð fyrir en heilt yfir var hann mjög svipaður og ég hafði séð fyrir mér.

Manstu eftir einhverri sérstakri gjöf sem þú fékkst eða einhverju öðru sem hafði sérstaka þýðingu fyrir þig?

Ég fékk margar góðar og nytsamlegar gjafir, meðal annars útilegubúnað, tjald, svefnpoka, potta og fleira, auk orðabóka og fallegra skartgripa.

Stærsta gjöfin var þverflautan sem ég fékk frá mömmu og pabba. Hún hafði sérstaka þýðingu fyrir mig og tengdist tónlistinni sem var stór hluti af lífi mínu á þessum tíma.

Ég fékk einnig peningagjafir sem ég notaði til að heimsækja frænkur mínar í Danmörku. Sú ferð varð að óvæntu ævintýri þegar flugfélagið fór á hausinn á meðan ég var úti. Fyrir vikið flaug ég heim á Saga Class í boði ríkisins, lúxus sem ég hafði ekki alveg séð fyrir mér.

Hver var tíðarandinn í kringum ferminguna þína – voru einhverjar sérstakar hefðir, tíska eða tónlist sem settu svip á þennan tíma?

Mig minnir að það hafi ekki verið rík hefð fyrir því að vera endilega í hvítu. Andinn var kannski aðeins frjálslegri og meira svigrúm til að leyfa persónuleikanum að njóta sín. Ég man að litaþemu voru mjög áberandi. Það var eins og allir væru með sinn lit sem gekk í gegnum allt, fötin, servíetturnar, kökurnar og skrautið.

Þegar þú lítur til baka, hvaða gildi eða lærdóm tókstu með þér úr fermingunni sem hefur fylgt þér í lífinu?

Þegar ég lít til baka sé ég að fermingin var upphaf að meiru en bara einum hátíðardegi. Í fermingarfræðslunni fór ég í fyrsta sinn í Vatnaskóg og sá staður átti síðar eftir að skipta mig miklu máli. Ég vann þar við sumarbúðir KFUM nokkur sumur og tók þátt í vetrarstarfi KFUK í Keflavík. Þar lærði ég að taka ábyrgð, vinna með ólíku fólki og standa með sjálfri mér.

Í unglingastarfi KSS kynntist ég fjölbreyttum hópi fólks sem hafði djúpstæð áhrif á mig, þar lærði ég bæði af því sem var jákvætt og því sem var krefjandi, og það mótaði mig sem manneskju.

Stærsti lærdómurinn var kannski sá að upplifa hvað það skiptir máli að tilheyra að vera hluti af samfélagi þar sem maður fær bæði að vaxa og leggja sitt af mörkum. Sú reynsla hefur fylgt mér síðan.

Manstu eftir fermingarfötunum eða klippingunni?

Við vinkonurnar enduðum óvart í eins kjólum, bara í sitthvorum litnum. Ég var í bláum en hún í grænum, og við vorum í svörtum, háum og uppreimuðum stígvélum við. Hárið var hálft upp og hálft niður með bláum blómum sem pössuðu við þemað í veislunni. Þetta var líklega dæmigert fyrir tíðarandann, aðeins frjálslegra og með smá 90s blæ.

Ertu að fara í einhverjar fermingarveislur í ár?

Já, ég er að fara í þrjár fermingarveislur í ár, allar hjá dýrmætu fólki, og ég hlakka til að vera með. Það er alltaf gaman að samgleðjast fjölskyldunum á svona degi.

Þetta eru líka tímamót fyrir foreldrana, sérstaklega þegar fyrsta barnið fermist. Þá verður dagurinn oft aðeins stærri í þeirra huga og maður finnur það í stemningunni.