Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

We Will Rock You í Frumleikhúsinu
Sunnudagur 22. mars 2026 kl. 10:35

We Will Rock You í Frumleikhúsinu

Metnaðurinn hjá Leikfélagi Keflavíkur hefur sjaldan verið meiri en nú þegar sýningin We Will Rock You er sett á fjalirnar. Um er að ræða risavaxið verkefni þar sem tónlist Queen fær nýtt líf í framtíðarsögu um frelsi, uppreisn og kraftinn í raunverulegri sköpun.

Verkinu er leikstýrt af Kristínu Leu Sigríðardóttur, sem snýr aftur á fornar slóðir í Frumleikhúsinu þar sem hún steig sín fyrstu skref. Hún segir hópinn hjá Leikfélagi Keflavíkur vera á ótrúlega háu plani og lýsir æfingaferlinu sem hreinum töfrum þar sem „krónísk gæsahúð“ sé fastur fylgifiskur á hverju rennsli.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Danshöfundurinn Helga Ásta Ólafsdóttir segir verkefnið hafa verið ómótstæðilegt, enda Queen hennar uppáhaldshljómsveit. Hún hefur lagt mikla vinnu í að láta hreyfingar og dans styðja við söguna, en lagafjöldinn í sýningunni er á við tvo hefðbundna söngleiki.

Óvæntar stjörnur og baráttuandi Sagan fylgir þeim Galíleó og Skara Mús í baráttu þeirra gegn stafrænni einsleitni. Guðjón Smári Smárason stígur sín fyrstu skref á sviði í hlutverki Galíleós eftir að leikstjórinn „spottaði“ hann í gegnum samfélagsmiðla. Guðjón Smári söng í Idol fyrir fáeinum árum og endaði í 5. sæti. Á móti honum leikur Margrét Arna Ágústsdóttir sem sigraðist á alvarlegum veikindum rétt fyrir prufur til að tryggja sér hlutverk uppreisnarseggsins Skara Mús.

Að sögn aðstandenda er sýningin „bilað magn af talenti“ og hvatningin til Suðurnesjamanna og annarra landsmanna er skýr: Ekki missa af þessari sýningu – þú átt eftir að sjá eftir því.