Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Þrælaði móður sinni og áttræðri frænku í kirkjur allt síðasta sumar
Sunnudagur 22. mars 2026 kl. 09:22

Þrælaði móður sinni og áttræðri frænku í kirkjur allt síðasta sumar

Messumeistarinn Jóhann Bragi

Það eru ekki allir unglingar sem nota sumarið í að mæta í kirkju en Jóhann Bragi, verðandi fermingarbarn sem fermist í Útskálakirkju 26. apríl næstkomandi, er enginn venjulegur maður. Hann setti sér nefnilega það markmið síðasta sumar að verða Messumeistari Suðurnesja og það tókst honum með svo miklum glæsibrag að eftir var tekið.

Til þess að hljóta þennan eftirsótta titil þurfti Jóhann að mæta í nánast hverja einustu sumarmessu á svæðinu og hann gerði sér lítið fyrir og þrælaði móður sinni og hinni áttræðu Sjönu frænku, Kristjönu Kjartansdóttur, með sér á milli allra kirkna á Suðurnesjunum. Eins og móðir hans, Elísa Rún Ólafsdóttir, orðar það sjálf þá var ekkert „elsku mamma“ í boði á þeim bænum enda var stefnan sett beint á sigur.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Jóhann sýndi það og sannaði að hann er ekki bara mættur til að sitja á bekknum og hlusta. Hann gerðist fljótlega hægri hönd prestanna, gekk frá sálmabókum og sá til þess að eldra fólkið fengi sinn kaffisopa eftir messur. Þá vakti það mikla athygli þegar hann sást rölta um Keflavík með hátalara í hjólbörum í sérstakri göngumessu, en þar gætti hann þess einnig sérstaklega vel að passa upp á Sjönu sína í göngunni.

Árangurinn lét ekki á sér standa en Jóhann endaði sumarið með titilinn í höfn og fékk fallegan kross í verðlaun fyrir vikið. Hann er nú þegar búinn að mæta í tuttugu messur á árinu sem er tvöfalt það sem krafist er fyrir ferminguna í apríl.

Þessi ungi kappi hefur sýnt að kirkjan kallar fram það besta í honum og hann er lifandi sönnun þess að ef maður setur sér markmið eru manni allir vegir færir.