Grindvíkingar tryggðu sér toppsætið
Grindvíkingar tryggðu sér deildarmeistaratitil Bónus deildar karla í körfubolta þegar þeir sigruðu Stjörnuna á heimavelli í spennandi leik í gærkvöldi. Lokatölur urðu 94-88.
Það voru þó gestirnir úr Garðabæ sem byrjuðu miklu betur og leiddu með ellefu stigum eftir fyrsta leikhluta. Heimamenn náðu að jafnaleikinn og í hálfleik var Stjarnan með níu stiga forskot.
Í síðari hálfleik komu Grindvíkingar miklu sterkari til leiks og unnu báða leikhlutana sannfærandi og leikinn að lokum með sex stigum.
Deandre Kane og Daniel Mortensen voru stigahæstir hjá heimamönnum.
Línur eru nú að skýrast fyrir úrslitakeppni sem hefst í lok mánaðar. Spennan er mikil í neðri hlutanum því ÍR, Njarðvík og Álftanes berjast um 7. og 8. sætið. Grindavík er öruggt á toppnum og Keflavík siglir lygnan sjó um miðja deild.
Grindavík-Stjarnan 94-88 (19-30, 25-23, 25-18, 25-17)
Grindavík: Deandre Donte Kane 26/8 fráköst/6 stolnir, Daniel Mortensen 22/5 stoðsendingar, Jeremy Raymon Pargo 17/6 fráköst/7 stoðsendingar, Jordan Semple 14/15 fráköst, Ólafur Ólafsson 12/4 fráköst, Valur Orri Valsson 3, Ragnar Örn Bragason 0, Patrekur Atlason 0, Alexander Veigar Þorvaldsson 0, Unnsteinn Rúnar Kárason 0, Nökkvi Már Nökkvason 0, Kristófer Breki Gylfason 0.
Stjarnan: Luka Gasic 26/7 fráköst, Seth Christian LeDay 25/9 fráköst, Hilmar Smári Henningsson 14/6 fráköst/5 stoðsendingar, Pablo Cesar Bertone 10/4 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 8/6 fráköst/7 stoðsendingar, Giannis Agravanis 3/4 fráköst, Bjarni Guðmann Jónson 2, Viktor Jónas Lúðvíksson 0, Atli Hrafn Hjartarson 0, Jakob Kári Leifsson 0, Aron Kristian Jónasson 0, Steinar Rafn Rafnarsson 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Jón Þór Eyþórsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson
Áhorfendur: 467
Staða:
1 Grindavík 20 17 3 1868 - 1765 34
2 Stjarnan 20 14 6 2086 - 1863 28
3 Tindastóll 19 14 5 1921 - 1729 28
4 Valur 20 13 7 1822 - 1801 26
5 KR 20 12 8 1996 - 1901 24
6 Keflavík 20 11 9 1914 - 1847 22
7 ÍR 20 9 11 1811 - 1823 18
8 Njarðvík 20 8 12 1942 - 1932 16
9 Álftanes 20 7 13 1815 - 1821 14
10 Ármann 20 5 15 1723 - 2001 10
11 Þór Þ. 20 5 15 1756 - 1945 10
12 ÍA 19 4 15 1658 - 1884 8




