Keflvíkingar mæta KR í fyrsta leik á útivelli í Bestu deildinni 12. apríl
Keflvíkingar mæta aftur til leiks í Bestu deildinni í knattspyrnu karla og leika fyrsta leikinn í Vesturbænum í Reykjavík gegn KR sunnudaginn 12. apríl. Keflavík leikur einnig útileik í 2. umferð og mætir þá Fram. Ástæðan er sú að HS Orku völlurinn í Keflavík er einn fárra grasvalla sem keppt er á og því var tekið tillit til þess þar sem mótið byrjar svona snemma og tvær umferðir fyrir sumardaginn fyrsta.
Keflavíkurliðið er nýkomið úr æfingaferð til Tenerife nýlega þar sem æft var við mjög góðar aðstæður.
Hér má sjá leikjadagskrá Keflavíkur í fyrri umferðinni í sumar:
KR - Keflavík // Sunnudag 12. apríl / 17:00 Meistaravellir
Fram - Keflavík // Föstudag 17. apríl / 18:00 Lambhagavöllur
Keflavík - Breiðablik // Miðvikudag 22. apríl / 18:00 HS orku völlur
KA - Keflavík // Sunnudag 26. apríl / 18:00 Greifavöllurinn
Keflavík - Víkingur // Sunnudag 3. maí / 18:00 HS orku völlur
ÍA - Keflavík // Föstudag 8. maí / 19:15 ELKEM völlurinn
Keflavík - Stjarnan // Sunndagur 17. maí / 16:00 HS orku völlur
Keflavík - Þór // Föstudagur 22. maí / 18:00 HS orku völlur
ÍBV - Keflavík // Sunnudagur 31. maí / 17:00 Hásteinsvöllur
Keflavík - FH // Sunnudagur 14. júní / 17:00 HS orku völlur
Valur - Keflavík // Sunnudagur 21. júní / 17:00 N1-völlurinn
Keflavík - KR // Sunnudagur 28. júní / 17:00 HS orku völlur



