Öll kvennaliðin á Suðurnesjum töpuðu
Það er líklega langt síðan Suðurnesjaliðin þrjú í bæði karla- og kvennaflokki í efstu deild körfuboltans töpuðu öll í sömu umferðinni. Karlaliðin töpuðu fyrir nokkrum dögum og nú töpuðu öll kvennaliðin í næst síðustu umferðinni í Bónus deild kvenna í körfubolta.
Keflavík tapaði í fyrrakvöld fyrir Þór Þorlákshöfn og í kvöld tapaði Njarðvík fyrir KR og Grindavík lá fyrir Haukum.
Grindavík sótti ekki gull í greipar Haukakvenna í Hafnarfirði. Haukar önnu örugglega 103-81 þrátt fyrir að Grindvíkingar hafi náð sjö stiga forskoti í fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta komu heimakonur í Haukum til baka með miklum látum og unnu leikhlutanna 31-9 og lögðu grunn að öruggum sigri.
Abby C. Beeman var atkvæðamest hjá Grindavík með 15 stig og 11 stoðsendingar.
Njarðvíkurkonur hafa ekki sýnt sitt rétta andlit að undanförnu. Þær töpuðu fyrir KR á útivelli 89-70.
Þær voru fjögurra stiga forskot í hálfleik en Vesturbæjardömurnar rúlluðu yfir Njarðvíkinga í síðari hálfleik.
Danielle Victoria Rodriguez 26 stig og 7 fráköst, og Brittany Dinkins 18 stig og 5 fráköst skoruðu 44 stig af 80 stigum. Þær hafa haldið uppi stigaskori liðsins í vetur en það er spurning hvort hvort ungu stelpurnar þurfi ekki að koma meira inn í stigaskorið, kannski auðvelt að segja en það er ljóst að álagið á þeim tveimur er mikið og minnkar ekki í úrslitakepninni. Eins og staðan er núna er líkur á því að Njarðvík fái Keflavík í úrslitakeppninni, en það getur ýmislegt gerst í lokaumferðinni í næstu viku.
Keflavík tapaði fyrir Þór Þorlákshöfn í spennandi leik liðanna í fyrrakvöld. Lokatölur urðu 88-85.
Heimakonur í Þorlákshöfn byrjuðu mun betur og leiddu með tíu stigum eftir fyrri hálfleik, 36-26. Keflvíkingar hittu illa í fyrri hálfleik.
Bikarmeistarar Keflavíkur náðu með seiglu að minnka muninn og á síðustu mínútunni munaði litlu að þeim tækist að jafna en Þórskonur héldu haus og innbyrtu þriggja stiga sigur.
Keishana Washington skoraði 26 stig, tók 5 fráköst og gaf 11 stoðsendingar, Angelina Turmel átti sinn besta leik til þessa og skoraði 24 stig og tók 5 fráköst.
Keflavík er með tveggja stiga forskot á toppi B-riðils en nú styttist í úrslitakeppni og aðeins ein umferð eftir í deildarkeppninni.
KR-Njarðvík 89-70 (16-22, 20-18, 31-13, 22-17)
KR: Molly Kaiser 23, Jiselle Elizabeth Valentine Thomas 20/7 fráköst, Rebekka Rut Steingrímsdóttir 20/8 fráköst, Eve Braslis 9/9 fráköst, Arndís Rut Matthíasdóttir 9/5 fráköst, Anna María Magnúsdóttir 8, Perla Jóhannsdóttir 0, Lea Gunnarsdóttir 0, Kristrún Ríkey Ólafsdóttir 0/6 fráköst/5 stoðsendingar, Kristrún Edda Kjartansdóttir 0, Guðný Helga Ragnarsdóttir 0, Klara Líf Pálsdottir 0.
Njarðvík: Danielle Victoria Rodriguez 26/7 fráköst, Brittany Dinkins 18/5 fráköst, Hulda María Agnarsdóttir 14/7 fráköst, Helena Rafnsdóttir 5/5 fráköst, Sara Björk Logadóttir 4, Sofia Roma 3, Aníta Rut Helgadóttir 0, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Inga Lea Ingadóttir 0/6 fráköst, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Krista Gló Magnúsdóttir 0, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0.
Dómarar: Davíð Kristján Hreiðarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Sófus Máni Bender
Áhorfendur: 183
Haukar-Grindavík 103-81 (14-21, 31-9, 30-25, 28-26)
Haukar: Amandine Justine Toi 27, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 25, Krystal-Jade Freeman 15/7 fráköst, Sigrún Björg Ólafsdóttir 13/7 fráköst/5 stolnir, Þóra Kristín Jónsdóttir 8/9 fráköst/8 stoðsendingar, Rósa Björk Pétursdóttir 6/6 fráköst, Sólrún Inga Gísladóttir 5/5 stoðsendingar, Catherine Mosengo Masa 2/4 fráköst, Lovísa Björt Henningsdóttir 2, Ásdís Freyja Georgsdóttir 0, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir 0, Agnes Jónudóttir 0.
Grindavík: Abby Claire Beeman 15/11 stoðsendingar, Isabella Ósk Sigurðardóttir 15/18 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 15, Ellen Nystrom 12/6 fráköst/6 stoðsendingar, Farhiya Abdi 12/5 fráköst/7 stoðsendingar, Ólöf María Bergvinsdóttir 8, Þórey Tea Þorleifsdóttir 4, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, Telma Hrönn Loftsdóttir 0.
Hamar/Þór-Keflavík 88-85 (22-14, 14-12, 25-27, 27-32)
Hamar/Þór: Jovana Markovic 25/7 fráköst, Jadakiss Nashi Guinn 22/6 fráköst/6 stoðsendingar, Ana Clara Paz 21/8 fráköst/5 stoðsendingar, Mariana Duran 14/5 fráköst/7 stoðsendingar, Bergdís Anna Magnúsdóttir 4, Dagrún Inga Jónsdóttir 2, Jóhanna Ýr Ágústsdóttir 0, Andrea Ösp Gunnsteinsdóttir 0, Sólveig Grétarsdóttir 0, Emilía Ýr Gunnsteinsdóttir 0, Guðrún Anna Jónsdóttir 0.
Keflavík: Keishana Washington 26/5 fráköst/11 stoðsendingar, Angelina Turmel 24/5 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 17/4 fráköst/5 stoðsendingar, Thelma Dís Ágústsdóttir 8/10 fráköst, Agnes María Svansdóttir 5, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 3/6 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 2/5 fráköst, Telma Lind Hákonardóttir 0, Oddný Hulda Einarsdóttir 0, Eva Kristín Karlsdóttir 0, Anna Lára Vignisdóttir 0, Katla Rún Garðarsdóttir 0.




