Byko
Byko

Íþróttir

Sveindís í stuði - skoraði tvö mörk og lagði upp eitt
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 22. mars 2026 kl. 16:13

Sveindís í stuði - skoraði tvö mörk og lagði upp eitt

Keflvíkingurinn og landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir átti stórleik með liði Angel City sem vann 3-1 útisigur á Bay FC í San Francisco í nótt. Sveindís skoraði tvö og átti stoðsendinguna sem gerði annað markið. Englarnir fara á topp NWSL-deildarinnar með sigrinum.

Sveindís Jane skoraði fyrsta markið eftir aðeins þrjár mínútur. Hálftíma síðar gerði hún vel að hrista af sér tvo varnarmenn og gaf hún boltann á Gisele Thompson sem tvöfaldaði forskot Englanna.

Í byrjun síðari hálfleiks skoraði okkar kona svo þriðja mark liðsins með skalla eftir hornspyrnu.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Angel City er með sex stig á toppi deildarinnar, jafnt Houston Dash og Portland Thorns að stigum.

Mörk og stoðsendingu Sveindísar má sjá í meðfylgjandi myndskeiði, fyrra mark hennar er á strax á 30. sekúndu.