Pizzan
Pizzan

Íþróttir

Frábær árangur hjá Borðtennisfélagi Reykjanesbæjar á Íslandsmótinu
Mánudagur 16. mars 2026 kl. 09:41

Frábær árangur hjá Borðtennisfélagi Reykjanesbæjar á Íslandsmótinu

Enn berast góðar fréttir af starfi Borðtennisfélags Reykjanesbæjar. Laugardaginn 14. mars fór Íslandsmótið í borðtennis fram í húsakynnum BH í Hafnarfirði og var árangur leikmanna félagsins til eftirbreytni.

Hinn sextán ára gamli Ibrahim Almassri, iðkandi hjá Borðtennisfélagi Reykjanesbæjar, vann til silfurverðlauna í 2. flokki karla. Þetta var í fyrsta sinn sem Ibrahim tekur þátt í Íslandsmótinu, en reglur mótsins heimila þátttöku þeirra sem hafa haft íslenska kennitölu í að minnsta kosti þrjú ár.

Ibrahim hóf æfingar hjá félaginu fyrir tæpum þremur árum og hafði þá enga reynslu af íþróttinni. Hann hefur sýnt ótrúlegan metnað og hæfileika á þessum stutta tíma og eru framfarir hans dæmi um hvað hægt er að ná langt með elju. Félagar hans hjá Borðtennisfélagi Reykjanesbæjar eru að vonum gríðarlega stoltir af þessum glæsilega árangri hjá þessum efnilega leikmanni.



Miðbæjareignir
Miðbæjareignir