Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Stórsigur hjá UMFN en umdeilt atriði í leik KR og Keflavíkur
Njarðvíkingar voru í miklu stuði gegn slöku Valsliði og uppskáru risasigur. VF/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 22:03

Stórsigur hjá UMFN en umdeilt atriði í leik KR og Keflavíkur

Njarðvíkingar léku sinn besta leik á leiktíðinni í Bónus deild karla í körfubolta og unnu stórsigur á Valsmönnum en Keflvíkingar töpuðu með tveimur stigum sem þeir fengu dæmd á sig þegar leiktíminn rann út.

Njarðvíkingar hreinlega rúlluðu yfir áhugalausa Valsmenn í IceMar höllinni. Heimamenn léku við hvern sinn fingur og það fór nánast allt ofan í hjá þeim grænu úr Njarðvík. Stiganýting sem hefur ekki sést í körfuboltaleik lengi og öruggur 32 stiga sigur staðreynd. Það er erfitt að taka einhvern leikmenn út því það voru nær allir með flott framlag. 

Nú er úrslitakeppnin í höndum Njarðvíkinga en þeir eru í 8. sæti og öruggu úrslitasæti, þeir hafa unnið tvo síðustu leiki sannfærandi og bragurinn á liðinu hefur verið allt annar í síðustu leikjum.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Umdeildur dómur í leikslok í Vesturbænum

Keflvíkingar voru nálægt því að stela sigri í Vesturbænum en fengu dæmd á sig tvö stig eftir að lokaflautan gall. Boltinn skoppaði af körfuhringnum og frá honum eftir skot hjá KR á þegar leiktíminn rann út en þá sló Mirza Bulic boltann í spjaldið og dómarar leiksins dæmdu körfu fyrir KR. Sérfræðingum Sýnar fannst ákvörðun dómaranna sérstök og Jón Halldór Eðvaldsson, einn sérfræðinganna sagði dóminn rangan.

Keflvíkingar voru fimmtán stigum undir þegar fjórði leikhluti hófst, 86-71 en Remy Martin sem var kominn aftur átti góða endurkomu og dreif liðið áfram í lokaleikhlutanum en þar fóru Keflvíkingar á kostum og voru búnir að jafna leikinn 105-105 þegar þetta umdeilda atvik átti sér stað þegar leiknum lauk.

Remy skoraði 24 stig, hann var sterkur í byrjun leiks og svo á lokakaflanum en innkoma hans hefur mikið að segja fyrir Keflavík. Mirza Bulic átti þrátt fyrir lokaatriðið frábæran leik og skoraði 24 stig og tók 12 fráköst.

Njarðvík-Valur 110-78 (25-19, 35-15, 29-18, 21-26)

Njarðvík: Dwayne Lautier-Ogunleye 27/4 fráköst/6 stoðsendingar, Dominykas Milka 21/11 fráköst, Sven Smajlagic 21/10 fráköst, Veigar Páll Alexandersson 19, Luwane Pipkins 8/5 stoðsendingar, Snjólfur Marel Stefánsson 5, Guðmundur Aron Jóhannesson 5, Brynjar Kári Gunnarsson 2, Viktor Máni Ólafsson 2, Sigurður Magnússon 0, Almar Orri Jónsson 0, Bóas Orri Unnarsson 0.

Valur: Antonio Keyshawn Woods 24, Kristófer Acox 18/8 fráköst, Lazar Nikolic 17/4 fráköst, Kári Jónsson 10, Callum Reese Lawson 7, Karl Kristján Sigurðarson 2, Hjálmar Stefánsson 0, Veigar Örn Svavarsson 0, Orri Már Svavarsson 0, Igor Maric 0, Gabríel Kazlauskas Ágústsson 0, Didrik Högni Yeoman 0.

Dómarar: Jóhannes Páll Friðriksson, Davíð Kristján Hreiðarsson, Guðmundur Ragnar Björnsson

Áhorfendur: 357

-----

KR-Keflavík 107-105 (26-27, 27-19, 33-25, 21-34)

KR: Linards Jaunzems 30/8 fráköst, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson 27/5 fráköst/11 stoðsendingar, Toms Elvis Leimanis 20/10 stoðsendingar, Kenneth Jamar Doucet JR 13, Rinalds Malmanis 8/15 fráköst/3 varin skot, Friðrik Anton Jónsson 4/4 fráköst, Veigar Áki Hlynsson 3, Þorvaldur Orri Árnason 2, Benóní Stefan Andrason 0, Reynir Bjarkan Barðdal Róbertsson 0, Hallgrímur Árni Þrastarson 0, Lars Erik Bragason 0.

Keflavík: Remy Martin 24/4 fráköst/6 stoðsendingar, Mirza Bulic 24/12 fráköst, Egor Koulechov 19/4 fráköst, Hilmar Pétursson 14, Ólafur Björn Gunnlaugsson 12, Craig Edward Moller 10/8 fráköst, Halldór Garðar Hermannsson 2, Dagur Stefán Örvarsson 0, Daniel Eric Ottesen Clarke 0, Jakob Máni Magnússon 0, Frosti Sigurðarson 0, Eyþór Lár Bárðarson 0.

Dómarar: Gunnlaugur Briem, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Sófus Máni Bender

Áhorfendur: 417