Pizzan
Pizzan

Íþróttir

Stærsta Nettómót sögunnar
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 11:10

Stærsta Nettómót sögunnar

Stærsta Nettómót sögunnar í körfuknattleik fór fram í Reykjanesbæ og Suðurnesja-bæ um liðna helgi. Það eru körfuknattleikslið Keflavíkur og Njarðvíkur sem standa að mótinu sem fór fram í 34. sinn. Mótið er fyrir börn á aldrinum sex til tíu ára.

Leikið var á átján völlum í öllum íþróttahúsum Reykjanesbæjar og einnig í Suðurnesjabæ. Alls sendu tuttugu og þrjú félög alls 277 lið til keppni en keppt var í aldursflokkunum 6-7 ára og 8-10 ára.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Alls voru börnin sem tóku þátt í mótinu hátt í 1.300 talsins og leikirnir voru taldir í hundruðum.

Auk körfubolta var ýmis afþreying í boði, leiksvæði í Reykjaneshöll og sundlaugar voru opnar mótsgestum. Þá var haldin lokahátíð við Sunnubrautina þar sem allir þátttakendur fengu vegleg verðlaun frá Nettó, aðalstyrktaraðila mótsins.

Fleiri myndir í myndasafni með fréttinni.