Bjartsýni og uppbygging í brennidepli á upplýsingafundi Járngerðar
Mikill kraftur er í íbúum og hagsmunaaðilum í Grindavík þrátt fyrir krefjandi aðstæður. Á fundi Járngerðar á Teams í vikunni var farið yfir væntanlegar skýrslur um endurreisn bæjarins, niðurrif mannvirkja sem marki upphaf uppbyggingar og mikilvægar dagsetningar vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.
Alþjóðabankinn og rammaáætlun um endurreisn
Skarphéðinn Berg Steinarsson, formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur, upplýsti að fulltrúar Alþjóðabankans væru mættir til landsins. Þeir munu eiga fundi með bæjarráði og embættismönnum til að meta breytingar síðan í haust og kynna ábendingar úr væntanlegri skýrslu sinni.
Í vikunni verða haldnar vinnustofur á vegum bankans:
- Ásættanleg áhætta: Fjallað verður um skilgreiningu á áhættu til langs tíma og mögulegar mótvægisaðgerðir.
- Samfella í rekstri: Farið verður yfir starfsumhverfi fyrirtækja í sjávarútvegi og ferðaþjónustu.
Bæði Alþjóðabankinn og nefndin stefna á að skila sínum tillögum og rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur um mánaðamótin mars/apríl.
Niðurrif er liður í uppbyggingu
Einar Sveinn Jónsson, slökkviliðssjóri Slökkviliðs Grindavíkur, greindi frá því að niðurrif á skemmdum húsum væri hafið í bænum. Hann lagði áherslu á að líta ætti á þetta sem jákvætt skref; með því að fjarlægja ónýt mannvirki sé verið að rýma til fyrir nýrri Grindavík. „Ef við ætlum að byggja bæinn upp þá þarf að taka til,“ sagði Einar. Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður Járngerðar, bætti við að um leið losni bærinn við girðingar á mörgum svæðum.
Öryggismál og jarðhræringar
Örn Viðar Skúlason minnti á að vegna yfirvofandi hættu á kvikuhlaupi eða eldgosi væri eðlilegt að fólk væri extra á vaktinni og takmarkaði gistingu í bænum. Nýtt áhættumat frá Veðurstofunni er væntanlegt á næstu dögum.
Framundan í apríl og maí
Fundarmenn voru sammála um að apríl yrði mikill örlagamánuður fyrir bæjarfélagið. Helstu dagsetningar vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí eru:
- Byrjun apríl: Frestur íbúa sem fluttu lögheimili eftir 9. nóvember 2023 til að óska eftir að komast á kjörskrá í Grindavík rennur út 45 dögum fyrir kjördag.
- 10. apríl: Frestur til að skila inn framboðslistum til kjörstjórnar ásamt meðmælendalista rennur út fyrir hádegi.
- 16. maí: Kjördagur.
Að lokum var greint frá því að forstjóraskipti séu fyrirhuguð hjá Bláa lóninu; Margrét tekur formlega við þann 19. mars. Ámundínus Örn Öfjörð tók fram að mikill vilji væri hjá fyrirtækinu að taka þátt í uppbyggingu í Grindavík.