Föstudagur 6. mars 2026 kl. 16:15

Keflvískt par lýsir dramatískum flótta frá Dubai

„Við vorum föst í miðju stríði“

„Tilfinningin var eiginlega bara hræðileg. Óvissan var svo mikil,“ segir Davíð Guðlaugsson sem lenti ásamt ófrískri unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur, í miðri eldflaugahríð í Dúbaí. Í nýju viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta lýsa þau rúmlega þriggja sólarhringa flótta sínum undan stríðsátökum.

Parið var á leið heim af Balí þegar flugi þeirra var aflýst vegna átaka milli Írans og Ísraels. Þau lýsa því hvernig þau vöknuðu við háværar neyðartilkynningar í símum sínum um miðja nótt þar sem þeim var skipað að leita skjóls í neðanjarðarbyrgjum vegna yfirvofandi flugskeytaárása.

„Maður var alltaf að vakna við sprengingar eða hljóð í þotum,“ segir Lovísa, en hún játar að ástandið hafi verið gríðarlegt álag, ekki síst þar sem hún gengur með barn undir belti.

Þar sem litla aðstoð var að fá frá opinberum leiðum, tóku feðgar Davíðs heima á Íslandi málin í sínar hendur. Skipulagður var sex tíma akstur á 150 km hraða yfir eyðimörkina til Óman, þar sem þau lentu í tollveseni vegna óvenjulegs minjagrips, og þaðan áfram í gegnum Sádi-Arabíu til London.

Í viðtalinu segja þau frá óttanum í háloftunum, þögninni í morgunmatnum þar sem allir biðu fregna og gríðarlegum létti þegar þau loksins lentu á Íslandi eftir svefnlausar nætur.

Sjáðu ítarlegt viðtal við Davíð og Lovísu í spilaranum hér að ofan.