Þriðja tap Grindvíkinga en tróna þó enn á toppnum
Grindvíkingar töpuðu sínum þriðja leik á leiktíðinni í Bónus deild karla í körfubolta þegar þeir heimsóttu Tindastól á Sauðárkróki. Lokatölur 92-87 en Grindavík er þó enn með fjögurra stiga forskot í toppsæti deildarinnar.
Leikurinn á Króknum var jafn allan tímann en heimamenn voru sterkari í lokin og tryggðu sér sigur. Adomas Drungilas var Grindvíkingum erfiður en hann skoraði 25 stig og tók 13 fráköst. Ólafur Ólafsson (22 stig) og Deandre Kane (21 stig/11 fráköst) voru atkvæðamestir Grindvíkinga.
Tindastóll og Stjarnan eru í 2.-3. sæti með 28 stig en Valsmenn eru með 26.
Tindastóll-Grindavík 92-87 (26-30, 20-10, 17-20, 29-27)
Tindastóll: Adomas Drungilas 25/13 fráköst, Júlíus Orri Ágústsson 14, Taiwo Hassan Badmus 12/9 fráköst, Sigtryggur Arnar Björnsson 12, Dedrick Deon Basile 9/7 fráköst/11 stoðsendingar, Ragnar Ágústsson 8, Davis Geks 7/4 fráköst, Daniel Dolenc 3, Pétur Rúnar Birgisson 2/6 fráköst, Viðar Ágústsson 0, Víðir Elís Arnarsson 0, Hallur Atli Helgason 0.
Grindavík: Ólafur Ólafsson 22, Deandre Donte Kane 21/11 fráköst/5 stoðsendingar, Jordan Semple 14/15 fráköst/4 varin skot, Jeremy Raymon Pargo 14/8 fráköst/12 stoðsendingar, Daniel Mortensen 10/5 stoðsendingar, Kristófer Breki Gylfason 6/7 fráköst, Patrekur Atlason 0, Unnsteinn Rúnar Kárason 0, Nökkvi Már Nökkvason 0, Valur Orri Valsson 0, Ragnar Örn Bragason 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð Kristján Hreiðarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson
Áhorfendur: 350
1 Grindavík 19 16 3 1774 - 1677 32
2 Stjarnan 19 14 5 1998 - 1769 28
3 Tindastóll 19 14 5 1921 - 1729 28
4 Valur 19 13 6 1744 - 1691 26
5 Keflavík 19 11 8 1809 - 1740 22
6 KR 19 11 8 1889 - 1796 22
7 ÍR 19 8 11 1718 - 1734 16
8 Njarðvík 19 7 12 1832 - 1854 14
9 Álftanes 19 7 12 1726 - 1728 14
10 Þór Þ. 19 5 14 1682 - 1866 10
11 Ármann 19 4 15 1644 - 1927 8
12 ÍA 19 4 15 1658 - 1884 8



