Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Gekk framhjá Keflavíkurkirkju daglega á leið til skóla
Sunnudagur 15. mars 2026 kl. 06:22

Gekk framhjá Keflavíkurkirkju daglega á leið til skóla

„Ég fermdist í Keflavíkurkirkju á Pálmasunnudag 1989 og svo var ég fjórtán árum áður fyrsta barnið sem Séra Ólafur Oddur skírði þannig að kirkjan hefur alla tíð átt stóran sess í mínu lífi. Þá hefur hún verið nágranni minn í all nokkur ár og ég get meðtekið hið heilaga orð þegar ég horfi út um gluggann,“ segir Sigurður Guðjónsson, bílasali og eigandi Bílasölu Reykjaness.

Kalt borð og kökuveisla

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Siggi slær á létta strengi eins og honum er eðlislægt þegar hann rifjar upp ferminguna. „Ég man eitthvað eftir veislunni og gjöfunum,“ ef þú ert að spyrja um það, rifjar hann upp.

„Það var snjókoma um morguninn á fermingardaginn minn. Þetta var í mars en þegar við gengum upp úr kjallaranum og fram í Keflavíkurkirkju í kirtlunum var komið fallegt veður, sól og bjart. Eftir fermingu og altarisgöngu var veisla á mínu æskuheimili. Þar var í boði kalt borð og kökur, keypt hjá Axel veitingamanni í Keflavík. Það var öllu helstu ættingjum og vinum boðið, margt sem ég þekkti ekki neitt, sem er nú svo sem eðlilegt fyrir ungan gaur. Ég fékk fullt af gjöfum, tölvuborð og eitthvað fleira í herbergið en svo líka mikið af útivistardóti, ég var á fullu í skátunum og því auðvelt að gefa mér bakpoka, sjónauka og slíkt en ég fékk líkar bækur og eitthvað af peningum sem ég eyddi nú fljótlega eftir fermingu.“

Ákveðinn boðskapur

Sigurður segir að hann hafi stundað fermingarfræðslu hjá Ólafi Oddi í gamla Kirkjulundi. „Hún var lærdómsrík og ég man að maður áttaði sig á, kannski aðeins meira þegar ég varð eldri, að þetta var ákveðinn boðskapur sem maður hefur farið með í gegnum lífið. Komdu vel fram við náungann og þá gerir hann það sama við þig.“

Siggi segir að hann hafi verið í fínum jakkafötum með linda, eitthvað sem hafi ekki staðist tímans tönn og hafi úrelst mjög fljótt. Þá fór hann í myndatöku hjá Heimi Stígssyni á efstu hæðinni í Hagafellshúsinu ofarlega á Hafnargötunni.

Góður nágranni

Kirkjan hefur fylgt Sigga nær alla tíð. Æskuheimili hans var við Birkiteig í Keflavík og því gekk hann daglega framhjá Keflavíkurkirkju á leið til skóla. Svo hafi hann flutt á Kirkjuteiginn fyrir all nokkrum árum og býr þar með fjölskyldu sinni.

„Ólafur Oddur skírði elsta strákinn minn en það var á hans síðustu árum í starfi. Ég hef fermt þrjú ungmenni og það hefur gengið vel þó það hafi allt verið mismunandi. Ég hef setið í sóknarnefnd í tæpan áratug sem er mjög gefandi og svo bý ég núna í götunni við kirkjuna. Þetta verður ekki mikið betra.“

...Þetta var bara stór dagur í lífi manns á þessum tíma. Það kom aldrei neitt annað til greina en að fermast. Ganga í fullorðinna manna tölu, staðfesta skírnina og kristna trú. Ég er sjálfur þannig í dag ..