Sindri Jens er nýr formaður Ungmennafélagsins Þróttar
Sindri Jens Freysson er nýr formaður aðalstjórnar Ungmennafélagsins Þróttar. Hann tekur við af Berglindi Petru Gunnarsdóttur sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Sindri býr ásamt Huldu eiginkonu sinni og þremur börnum þeirra að Hafnargötu 28 í Vogum. Skemmtileg tilviljun er að húsið var á sínum tíma byggt af Reyni Brynjólfssyni, fyrsta og eina félagsmanni UMFÞ sem hlotið hefur gullmerki Þróttar. Reynir bjó þar í áratugi eða þar til börn hans voru orðin uppkomin.
Sindri starfar sem þjónustustjóri hjá Fagerberg og er menntaður mekatróník tæknifræðingur.
Í ávarpi sínu þakkaði Sindri fyrir traustið og sagðist hlakka til komandi verkefna og samstarfs við félagsfólk Þróttar.




