Tónlistarskóli Reykjanesbæjar - forskóli 2
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar - forskóli 2

Aðsent

Ráðum hæfasta fólkið
Mánudagur 16. mars 2026 kl. 13:02

Ráðum hæfasta fólkið

Ég hef starfað hjá Reykjanesbæ í að verða 10 ár. Þar hef ég komið að fjölbreyttum verkefnum og lengst af sem gæðastjóri sveitarfélagsins. Sú reynsla hefur kennt mér hversu mikilvægt það er að ákvarðanir séu gagnsæjar, ábyrgar og byggi á staðreyndum. Einnig skiptir miklu að hlusta á íbúa. Betri ákvarðanir verða til þegar ólík sjónarmið fá að heyrast og samráð er virkt. Sterkt samfélag byggir á trausti, samtali og samvinnu.

Ég er fædd og uppalin í Reykjanesbæ og hér el ég upp börnin mín. Reykjanesbær er samfélag í mikilli sókn þrátt fyrir stórar áskoranir seinustu ára, eins og mikil fólksfjölgun, jarðhræringar, heimsfaraldur ásamt öðru. Vil ég leggja mitt af mörkum til þess að það haldi áfram að þróast á faglegum og ábyrgum grunni.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Kosningar sem ráðningarferli

Þegar sveitarfélag ræður starfsfólk gilda skýrar reglur: 

Við metum menntun, reynslu og hæfni og veljum þann sem er hæfastur í starfið.

  • Ekki þann vinsælasta eða háværasta.

Af hverju? Vegna þess að við erum að ráða fólk í störf sem skipta samfélagið okkar máli – störf sem snerta skólana okkar, þjónustuna við eldri borgara, skipulag sveitarfélagsins, fjármuni og framtíð barna okkar.

  • Við myndum aldrei ráða leikskólastjóra á grundvelli vinatengsla.
  • Við myndum aldrei velja sviðsstjóra út frá því hver talar hæst.

Í raun er það nákvæmlega það sem við gerum í kosningum – við erum að ráða fólk til þess að fara með ábyrgð fyrir samfélagið okkar.

Ákvarðanir sveitarstjórnar snerta alla þessa þætti sem komu fram hér fyrir ofan.

Þess vegna tel ég mikilvægt að umræðan snúist um hæfni, ábyrgð og lausnir – ekki vinsældakeppni.

  • Stefna fram yfir slagorð
  • Hæfni fram yfir stemningu
  • Raunhæf markmið fram yfir kosningaloforð

Með minni reynslu af stjórnsýslu og stefnumótun vil ég leggja mitt af mörkum til þess að styrkja faglega stjórnsýslu, bæta ákvarðanatöku og tryggja að rödd íbúa fái raunverulegt vægi með skýru verklagi.

  • Ég býð mig ekki fram til þess að safna vinsældum.
  • Ég býð mig fram til þess að vinna starf – fyrir íbúa Reykjanesbæjar.

Aðalheiður Júliros Óskarsdóttir

Höfundur er formaður Viðreisnar á Suðurnesjunum og skipar 4. sæti fyrir komandi sveitastjórnarkosningar.