Góð tannheilsa - hamingjuríkt líf
Nú er Tannverndarvikan gengin í garð en hún er haldin á ári hverju þann 16.- 20.mars og endar á Alþjóðlegum tannverndardegi þann 20.mars. Markmiðið er að vekja athygli á hve mikilvægt það er fyrir hamingjuríkt líf að huga að tannheilsu alla ævi.
Það er ekki svo langt síðan fólk fékk gervitennur í fermingargjöf en tímarnir hafa breyst og nú eru enn fleiri með sínar eigin tennur með hækkandi aldri. Því er mikilvægt að huga vel að sínum eigin tönnum og varðveita það sem við erum svo heppin að fæðast með.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að sterk tengsl eru á milli slæmrar tannheilsu og slæmrar andlegrar líðan. Slæm tannheilsa hefur því ekki einungis áhrif á tennurnar og munnholið heldur einnig andlega heilsu.
Með reglulegri og góðri tannhirðu, hollu mataræði og reglulegu eftirliti hjá tannlækni má fyrirbyggja marga algenga tannsjúkdóma.
Tannburstun
Tannburstun er einföld en gott er að fara reglulega yfir hana. Tannbursta skal vel upp á tannhold, það á til með að gleymast. Tannþráður eða millitannaburstar er jafn mikilvægt og að tannbursta því tannburstahárin eru ekki nógu smá til þess að komast á milli tannanna. Tannburstinn nær að hreinsa aðeins 60% af yfirborði tanna og því er mikilvægt að klára þessi 40% með tannþræðinum.
Mikilvægt er að nota tannkrem sem inniheldur flúor til þess að styrkja tennurnar eftir máltíðir og drykki dagsins því með nútíma mataræði er flúorið mikilvægasta innihaldsefnið í tannkreminu. Einnig er mikilvægt að skyrpa og ekki skola munninn eftir tannburstun.
Varast skal flúorlaus tannkrem en reglulega koma inn öflugar herferðir fyrirtækja sem selja flúorlaus tannkrem þar sem talað er um að flúor sé skaðlegt og búið er að setja t.d. Aloe Vera í stað flúors. Flúor er ekki skaðlegt nema í afar miklu magni en tannburstun með flúor tannkremi á ekki við í þeirri umræðu þar sem magnið er lítið og jákvæðu áhrifin vega meira við uppbyggingu tanna.
Orkudrykkir
Með aukningu á notkun samfélagsmiðla fara af stað stórar auglýsingaherferðir fyrirtækja þar sem vinsæl ungmenni eru fengin til að auglýsa alls konar tegundir af sýruætandi orkudrykkjum og þar af leiðandi sjáum við tannlæknar aukna tíðni á glerungseyðingu hjá ungu fólki. Þegar glerungurinn eyðist þá verða tennurnar gular og vörnin gegn tannskemmdum minnkar.
Þegar við stundum líkamsrækt þá þornar munnurinn upp og við fáum munnþurrk á meðan að á æfingunni stendur. Margir taka með sér sýruætandi orkudrykk á æfingu sem er afar slæmt fyrir tennurnar en þá er lítið sem ekkert munnvatn til þess að hlutleysa sýruna og glerungurinn byrjar að eyðast. Mikilvægt er að drekka vatn og skola munninn strax eftir að hafa drukkið orkudrykk til að skola í burtu sýruna og koma þannig í veg fyrir glerungseyðingu.
Munnþurrkur
Munnþurrkur er afar hvimleitt vandamál og það eru alls kyns ástæður fyrir munnþurrki. Eitt það helsta sem er valdur munnþurrks eru lyf, geislameðferðir á höfuð- og hálssvæði og sjúkdómar. Mörg lyf valda munnþurrki og margir einstaklingar eru á fleiri en einu lyfi sem valda munnþurrki.
Til að nefna eru þunglyndis-, kvíðastillandi-, blóðþrýstingslækkandi-, vöðvaslakandi- og krabbameinslyf þau sem valda munnþurrki en þetta er ekki tæmandi listi.
Á Íslandi eru 171,76 einstaklingar á hverja 1000 íbúa á þunglyndislyfjum skv. nýjustu gögnum Embætti Landlæknis sem gerir rúm 17%.
Munnþurrkur hefur áhrif á tal, tyggingu og getur valdið aukinni tíðni af tannskemmdum þar sem ekki er nægt munnvatn til þess að hlutleysa sýruna í munnholinu. Einstaklingar sem eru með munnþurrk þurfa því að drekka vel af vatni eftir máltíðir til þess að hjálpa munnholinu að hllutleysa sig. Einnig eru til alls kyns hjálpartæki eins og töflur, gervimunnvatn og sprey sem auka munnvatnsframleiðslu. Ef manneskju grunar að munnþurrkur sé til staðar þá er ráðlagt að hafa samband við sinn heimilistannlækni, komast að rót vandans og fá viðeigandi meðferð.
Nikótínpúðar
Nikótínpúðar eru orðnir algengir í dag enda er mjög auðvelt að nálgast þá.
Nikótínið getur haft langtíma áhrif á hjarta- og æðakerfið okkar með kölkun æða og hækkuðum blóðþrýstingi.
Tannholdið verður fyrir varanlegum áhrifum á mörkum tanna og tannholds en það byrjar að hörfa og þá fara ræturnar að verða berar með tilheyrandi óþægindum, kuli og útlitslegum breytingum. Þessar breytingar eru óafturkræfar. Því skal huga vel að langtímaáhrifum af notkun nikótínpúða áður en manneskja fellur í þessa ávanabindandi gryfju.
Börn og unglingar
Mælt er með að börn fari í fyrstu heimsókn til tannlæknis um 2,5 árs til 3 ára.
Foreldrar þurfa einungis að borga komugjald sem eru 3500 krónur á hverjum 12 mánuðum upp að 18 ára aldri.
Mikilvægt er að byrja strax að tannbursta með flúor tannkremi við komu fyrstu tannar og passa að lágmarka mjólkurgjöf á næturnar. Varast skal súra drykki í pela yfir nóttina.
Tannþráður er jafn mikilvægur hjá börnum eins og fullorðnum því um leið og tennurnar byrja að snertast þarf að byrja að nota tannþráð. Til eru alls kyns tegundir af tannþráðum í dag sem gera ferlið skemmtilegra fyrir börnin okkar.
Kristjana Benediktsdóttir
tannlæknir.






