Keilisnes - Iðnaður eða íbúðabyggð með sjávarútsýni?
Keilisnes á Vatnsleysuströnd er fallegt og ósnert landssvæði við sjóinn. Fullyrða má að Keilisnes sé eitt verðmætasta byggingarland til framtíðar fyrir íbúðabyggð á stórhöfuðborgarsvæðinu. Í aðalskipulagsdrögum Voga er gert ráð fyrir að 180 hektarar af landi Keilisness fari undir iðnaðarstarfsemi. Til samanburðar má geta þess að íbúðabyggð á Arnarnesi í Garðabæ er á 32 hekturum. Samhliða Keilisnesi til austurs er landnámsjörðin Flekkuvík og til vesturs er Kálfatjarnargolfvöllur. Flekkuvík er sannkölluð náttúruvin við sjóinn. Keilisnes og Flekkuvík eru í eigu ríkissjóðs að undaskilinni lítilli spildu á Keilisnesi sem er í eigu sveitarfélagsins Voga.
Áhugi fjárfesta á heilsutengdri ferðaþjónusu í Flekkuvík
Fyrir rúmu ári síðan fór ég, þá sem þingmaður Suðurkjördæmis, með fjárfesti frá Indlandi í Flekkuvík. Viðkomandi er einn af stærri fjárfestum í ferðaþjónustu og verslunarmiðstöðvum á Indlandi auk þess rekur hann hótelkeðjur í Dúbaí og á Bretlandi. Fjárfestirinn heillaðist mjög af Flekkuvík og sá þar fyrir sér uppbyggingu á heilsutengdri lúxusferðaþjónusu og hótelrekstri með baðlóni. Sjávarútsýnið og fjallasýnin var sem gull í hans augum. Viðhorf hans sýna að svæðið hefur sannarlega fleiri möguleika til framtíðar en sveitarfélagið leggur upp með. Yrði verkefnið að veruleika væri um milljarða uppbyggingu að ræða með fjölda starfa.
Vogar dusta rykið af 35 ára gömlum tillögum
Sveitarfélagið Vogar hefur nú dustað rykið af 35 ára gömlum tillögum um Keilisnes og hrint af stað átaki til að markaðssetja það fyrir atvinnuuppbyggingu og stórskipahöfn. Á 35 árum hefur margt breyst. Nú er eftirsótt að búa við sjóinn. Við höfnina í Keflavík hafa verið byggð glæsileg og eftirsótt fjölbýlishús með útsýni yfir Faxaflóa þar sem áður var atvinnustarfsemi.
Í Hafnarfirði er glæsileg íbúðabyggð við höfnina, sem þótti óhugsandi staðsetning fyrir 35 árum. Ég tel að það sé mikil skammsýni til framtíðar að leggja svo stórt og verðmætt land sem Keilisnes og Flekkuvík eru undir iðnað, stórskipahöfn og aðra atvinnuuppbyggingu. Vissulega eiga sveitarfélög að standa fyrir atvinnuuppbyggingu. Störf í heimabyggð skapa tekjur fyrir sveitarfélög. Vogar er landmikið sveitarfélag. Hægt er að skipuleggja atvinnusvæði annars staðar innan þess, á svæði sem er ekki hentugt undir íbúðabyggð, eins og t.d. fyrir ofan eða í námunda við Reykjanesbraut. Þar eru þegar vegtengingar frá brautinni. Þá leið fóru Hafnfirðingar með iðnaðarsvæðinu á Völlunum. Ekki verður séð að eftirspurn sé eftir stórskipahöfn á Keilisnesi. Mikil uppbygging er framundan í Helguvík og áform eru um stórt atvinnusvæði auk aðstöðu fyrir gáma- og skemmtiferðarskip við nýja Galtarhöfn, skammt frá Reykjavík.
Álver sem aldrei varð
Fyrir 35 árum síðan stóð til að byggja álver á Keilisnesi. Ekkert varð hins vegar að verkefninu og fagna margir því í dag að svo fór. Ekki er ólíklegt, í ljósi mikillar fjölgunar íbúa á síðustu misserum í Vogum, að eftir 35 ár verði á bilinu 10-15 þúsund manns búsettir í sveitarfélaginu. Íbúarnir eiga að fá að njóta þeirrar náttúrufegurðar sem sveitarfélagið býr að og eiga þess kost að búa við sjóinn.
Lærum af sögunni, hugsum til framtíðar
Ekkert samtal fór fram við íbúa sveitarfélagsins um Keilisnes áður en gömlu tillögurnar voru teknar upp úr skúffunni. Skiplagsmál á Keilisnesi er stórt mál til framtíðar. Dæmin sanna að það sem allir vildu fyrir 35 árum fá á Keilisnes vill enginn í dag. Keilisnes er stórt byggingarland, með útsýni til sjávar og fjalla, í næsta nágrenni við höfuðborgarsvæðið. Það býr yfir ómældum tækifærum.
Lærum af sögunni og hugsum til framtíðar.
Fyrir komandi kynslóðir.
Birgir Þórarinsson
Höfundur er fv. alþingismaður og er búsettur í sveitarfélaginu Vogum.






