Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Aðsent

Af hverju fer maður í framboð?
Fimmtudagur 12. mars 2026 kl. 13:48

Af hverju fer maður í framboð?

Þegar mér bauðst 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ tók ég mér tíma til umhugsunar, þótt svarið hafi fljótt orðið skýrt. Það er til einskis að kvarta á kaffistofunni yfir því sem betur má fara þegar maður hefur kost á því að taka ábyrgð og leggja sitt af mörkum.

Reykjanesbær hefur verið heimili mitt og fjölskyldu minnar um árabil og er ég uppalinn í bæjarfélaginu. Ég er giftur og á tvö börn á grunnskólaaldri og þekki því daglegt líf barnafjölskyldna í bænum af eigin raun. Ég hef kynnst leik- og grunnskólakerfinu, íþróttastarfinu, atvinnulífinu og samfélaginu í kringum okkur og séð bæði það sem vel er gert og það sem má gera betur.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Undanfarin tíu ár hef ég rekið eigið fyrirtæki hér í Reykjanesbæ, Konvin á Ásbrú. Þar áður starfaði ég við ýmis verkefni tengd fjármálum og rekstri. Sú reynsla hefur kennt mér mikilvægi ábyrgðar, skýrra markmiða og þess að fara vel með fjármuni.

Í atvinnulífinu lærir maður fljótt að árangur næst ekki með góðum áformum einum saman. Hann næst með skynsamlegum ákvörðunum, agaðri stjórn og skýrri sýn um hvert skuli stefna.

Ég tel að reynsla mín geti nýst vel í sveitarstjórnarmálum og ekki síst í Reykjanesbæ, þar sem ljóst er að vel þarf að halda á spöðunum í rekstri og stjórn bæjarins.

Öflugt atvinnulíf er grunnurinn

Reykjanesbær er í dag fjórða stærsta sveitarfélag landsins og fá sveitarfélög búa yfir jafn mörgum tækifærum. Hér á svæðinu er alþjóðaflugvöllur í bakgarðinum, öflugar hafnir, mikilvægt athafnasvæði Atlantshafsbandalagsins, jarðvarmaorkuver og einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Samfélagið okkar er fjölbreytt og kraftmikið og hér er löng og sterk hefð fyrir öflugu íþrótta- og menningarstarfi.

En jafnvel samfélög með sterkar grunnstoðir þurfa stöðugt að þróast og bæta sig.

Reykjanesbær þarf að verða eftirsóknarverður staður til að búa og starfa í. Það felur meðal annars í sér að skapa betra umhverfi fyrir atvinnulífið svo hér verði til fjölbreytt og vel launuð störf. Öflugt atvinnulíf er grunnurinn að sterkum sveitarfélögum.

Nauðsynlegt er að horfa gagnrýnum augum á rekstur bæjarins. Fasteignaskattar í Reykjanesbæ eru í dag meðal þeirra hæstu hjá stærstu sveitarfélögum landsins og útsvarið er hið hæsta sem lög leyfa. Það blasir við að skoða þarf rekstur bæjarins ofan í kjölinn og nýta fjármuni bæjarins betur til að hægt sé að skapa svigrúm til skattalækkana fyrir heimili og fyrirtæki í bænum.

Fjölbreytni fram yfir einsleitni

Þá þarf einnig að leggja áherslu á langtímahugsun í skipulags- og atvinnumálum. Fjölga þarf lóðum, bæði til að byggja fleiri heimili og fyrir atvinnuhúsnæði. Við Sjálfstæðismenn höfum verið mjög skýrir með það að við viljum bjóða upp á lóðir fyrir fjölbreytta uppbyggingu, þar sem rými er fyrir sérbýli en ekki bara fjölbýli. Við viljum að bæjarbúar geti átt kost á fjölbreyttu formi eigin heimilis með raunverulegu valfrelsi.

Innviðir bæjarins þurfa jafnframt að halda í við þann vöxt sem orðið hefur á undanförnum árum. Það á við um samgöngur, skóla, íþróttaaðstöðu og önnur mannvirki. Mikilvægt er að klára þær framkvæmdir sem þegar hafa verið hafnar og sinna reglulegu viðhaldi svo ekki safnist upp dýr vandamál síðar.

Þess vegna býð ég mig fram

Reykjanesbær er sveitarfélag sem býr að gríðarmiklum möguleikum en til þess að eiga þess kost að nýta þá þurfum við skýra stefnu, ábyrgan rekstur og metnað fyrir framtíð samfélagsins.

Sjálfstæðisflokkurinn teflir nú fram sterkum og fjölbreyttum lista undir forystu Vilhjálms Árnasonar í komandi kosningum. Lista sem samanstendur af einstaklingum sem allir hafa metnað til þess að hefja nýtt sóknarskeið fyrir Reykjanesbæ.

Maður fer í framboð til að styrkja samfélagið sem maður tilheyrir, nýta reynslu sína og þekkingu til að bæta hlutina og taka þátt í að móta framtíð bæjarfélagsins sem börnin okkar alast upp í. Ég er spenntur fyrir þeirri vegferð og hvet ég bæjarbúa til að taka þátt í þeirri vegferð með okkur.

Kristján Pétur Kristjánsson

Höfundur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.