Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Aðsent

Rótarýdagurinn 2026
Laugardagur 28. febrúar 2026 kl. 06:46

Rótarýdagurinn 2026

Þann 23. febrúar ár hvert minnist Rótarýhreyfingin stofndags hennar sem var 23. febrúar 1905. Þá hittust fjórir menn að frumkvæði lögfræðingsins Paul P. Harris á skrifstofu hans í Chicago. Hinir þrír voru klæðskeri, kolasali og verkfræðingur. Þetta var upphafið að Rotary International sem telur um 1,2 milljónir félaga um allan heim, óháð trúarbrögðum og stjórnmálahreyfingum, og byggði á því að leiða saman fólk úr ólíkum starfsgreinum og efla góðvild meðal manna, en konur eru líka menn, eins og fyrrverandi forseti Íslands, Vigdís Finnbogadóttir, lagði mikla áherzlu á.

Sjálfboðaliðar og samtök þeirra um allan heim vinna gríðarlega mikið og gott starf til þess að koma hlutum og lífi á betri veg. Rótarý um allan heim og þar á meðal hinn 80 ára Rótarýklúbbur Keflavíkur leggur sitt af mörkum, bæði með sjálfboðaliðastarfi og einnig með því að styrkja góð málefni. Hér í Reykjanesbæ hefur klúbburinn staðið fyrir gróðursetningum, tekið Krabbameinsfélag Suðurnesja undir sinn verndarvæng auk margs annars sem of langt yrði að telja upp.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

En eitt stærsta og mikilvægasta verkefni hreyfingarinnar er útrýming lömunarveiki í heiminum. Það var talið nánast óvinnandi vegur fyrir áratugum en nú hillir undir endalokin. Heilbrigði og útrýming sjúkdóma er ofarlega á blaði hennar.

Með stöðugt meiri ásókn í frítíma fólks og mikilli samkeppni um tíma fólks er afar mikilvægt að hlúa að starfi sjálfboðaliða. Það gera mörg félagasamtök og gott að minnast Rótarýhreyfingarinnar í tengslum við 23. febrúar fyrir 126 árum. Megi Rótarý blómstra og sjálfboðaliðar styrkjast í starfi hvar sem þeir leggja hönd á plóg.

Ólafur Helgi Kjartansson,
fyrrverandi forseti og umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi