Gleðifréttir af leikskólaplássum í Reykjanesbæ
Nýlega kom út greinagerð menntasviðs Reykjanesbæjar sem fjallar um fjölda barna á leikskóla aldri og laus leikskólapláss í sveitarfélaginu.
Greinagerðin er ánægjuleg því hún sýnir skýrt að rými er til staðar fyrir inntöku 18 mánaða barna í leikskóla í sumar og jafnvel inntöku enn yngri barna. Ástæðan fyrir þeirri dagsetningu er einföld: leikskólabörn sem útskrifast fara í grunnskóla eftir sumarfrí og því er inntaka nýrra barna miðuð við 15. ágúst þegar leikskólarnir opna á ný.

Þegar rýnt er í tölurnar sést jafnframt að mögulegt væri að taka inn enn fleiri börn. Heildarfjöldi leikskólaplássa í sveitarfélaginu verður 1.190 í vor þegar Drekadalur verður fullbyggður fyrir 120 börn en fjöldi barna 18 mánaða og eldri eru alls 1.066. Nú þegar hafa 42 börn sem fædd eru á árinu 2024 hafið dvöl í leikskólunum okkar og er óhætt að fullyrða að öll 18 mánaða og eldri börn í Reykjanesbæ muni frá leikskólapláss þegar nýtt skólaár hefst í ágúst á þessu ári.
Fjölgun leikskólabarna
Þrátt fyrir að plássin séu til staðar, þarf að gæta að fleiri atriðum áður en hægt er að lofa inngöngu yngri barna.
Íbúum Reykjanesbæjar hefur fjölgað hratt á undanförnum árum, eða um nær þúsund íbúa á ári síðustu tíu ár. Íbúar voru 15.302 árið 2016 en eru nú 24.606 sem jafngildir tæplega 62% fjölgun. Slík fjölgun myndi reynast öllum sveitarfélögum áskorun, ekki síst vegna uppbyggingu nauðsynlegra innviða.
Þegar litið er til fjölda leikskólabarna voru þau 898 árið 2015 en í dag eru þau 1.099. Á 11 árum hefur leikskólabörnum í sveitarfélaginu fjölgað um 18% sem jafngildir fjölgun um tæpa tvo leikskóla.
Þegar kemur að biðlistum eftir leikskólaplássi er í raun réttara að tala um skráningarlista. Sumir foreldrar skrá börn sín við fæðingu, aðrir við flutning í sveitarfélagið og enn aðrir þegar barnið nær 18 mánaða aldri. Lengd listans getur því tekið töluverðum breytingum frá mánuði til mánaðar.
Börn í Reykjanesbæ hafa almennt fengið inngöngu á leikskóla á því ári sem þau verða tveggja ára. Ástæðan er sú að yfir sumarið skapast svigrúm þegar 5 og 6 ára börn útskrifast og hefja grunnskólagöngu. Aldur barna við inngöngu í leikskóla hefur því verið um 25 mánaða að meðaltali en áhersla meirihluta bæjarstjórnar hefur verið að fjölga plássum á kjörtímabilinu til að lækka þennan meðalaldur.
Sum börn bíða þó lengur eftir plássi, einkum ef beðið er eftir plássi á ákveðnum leikskóla. Við erum lánsöm í að því leyti að í Reykjanesbæ eru starfandi 29 dagforeldrar og hafa aldrei verið fleiri. Sveitarfélagið býður foreldrum einnig upp á það að ef barnið þeirra er 18 mánaða hjá dagforeldri þá greiða þau sömu upphæð og þau myndu gera á leikskóla og Reykjanesbær niðurgreiðir gjöldin á móti.
Fjölgun starfsfólks
Það er mikilvægt að nýta þau pláss sem eru til staðar en við leggjum ríka áherslu á að tryggja mönnun leikskóla með fagfólki og hlúa að faglegu starfi leikskólanna.
Sökum þess förum við varlega í að fullyrða inntöku yngri barna en 18 mánaða að svo stöddu. Megin áherslan er að tryggja að 18 mánaða börn fái inngöngu í leikskólana okkar í sumar, sem við munum ná. Samhliða því höldum við áfram að laða til okkar hæft starfsfólk, sem er undirstaða leikskólastarfsins.
Á kjörtímabilinu hefur Reykjanesbær ráðist í ýmsar aðgerðir til að bæta starfsumhverfi leikskóla, þar á meðal:
- Starfsfólk leikskóla fær frí milli jóla og nýárs sem hluta af bættum vinnutíma.
- Samræmt frí hefur verið tekið upp milli leik- og grunnskóla.
- Þegar leikskólar loka í fríum er boðið upp á skráningardaga þar sem börnum býðst að fara á aðra opna leikskóla.
- Leikskólakennarar sem ráða sig til starfa hjá Reykjanesbæ fá 40% afslátt af leikskólagjöldum.
- Nýir kjarnasamningar hafa verið samþykktir sem bæta launakjör leik- og grunnskólakennara.
Fjölgun plássa
Ljóst er að staða leikskólaplássa mun batna verulega á árinu og hægt verður að taka inn 18 mánaða börn og jafnvel yngri. Þó er nauðsynlegt að halda áfram að efla faglegt starf leikskólanna og tryggja nægt starfsfólk, það skiptir höfuðmáli.
Samhliða mun Reykjanesbær halda áfram uppbyggingu leikskóla. Áformað er að byggja nýjan leikskóla í stað Garðasels, fyrstu skref í byggingu þriðja hluta Stapaskóla eru að fara af stað og jafnframt er verið að rýna möguleika á stækkun annarra leikskóla.
Að lokum
Leikskólarnir okkar eru dýrmætir og skipta samfélagið miklu máli. Þeir gegna lykilhlutverki í þroska barna og gera foreldrum kleift að stunda atvinnu sína. Þótt leikskólar séu ekki lögbundin þjónusta ættu þeir að sjálfsögðu að vera það í ljósi mikilvægi þeirra.
Þessi þjónusta er ómetanleg og við munum áfram leggja ríka áherslu á að styrkja hana líkt og við höfum ávallt gert.
Guðný Birna,
formaður menntaráðs Reykjanesbæjar.





