Úlfur í sauðargæru
Á þriðjudaginn þyrlaðist upp mikið moldviðri upp úr þurru þegar þingmaður Suðurkjördæmis og frambjóðandi til bæjarstjórnarkosninga í Reykjanesbæ, gerði sér mikinn mat úr því að í greinargerð með frumvarpi um stofnun innviðafélags í eigu ríkisins, kemur fram að skoðað hafi verið að leggja gjöld á áður byggð mannvirki.
Sem betur fer hefur það þegar verið staðfest að slíkt standi alls ekki til og hafi aldrei komið inn á borð ríkisstjórnar, enda yrði það gríðarlegt högg fyrir mörg þúsund íbúa Suðurnesja sem sækja vinnu og nám á höfuðborgarsvæðinu dag hvern. En burtséð frá því þá var tilkynnt í upphafi bæjarstjórnarfundar að forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hefði kallað umsvifalaust eftir fundi með þingmönnum Suðurkjördæmis til að ræða málið.
Það vakti athygli að hvergi kom fram í máli hans að þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks lögðu sjálfir fram þingsályktunartillögu um samgöngufélagið Þjóðbraut sem var ætlað nákvæmlega sama hlutverk og innviðafélag fjármálaráðherra. Ég var gáttaður eftir harða umræðu þriðjudagsins að sjá nafn Vilhjálms Árnasonar þingmanns á þingsályktunartillögu Þjóðbrautar. Er hægt að vera bæði harður á móti veggjöldum en leggja þau á sama tíma til þegar það hentar?
Það er ljóst að takmarka þurfti fé til uppbyggingar á umferðarmannvirkjum landsins í nýrri Samgönguáætlun. Bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar mótmæltu þeim áformum harðlega þegar í ljós kom að áframhaldandi tvöföldun Reykjanesbrautar hafi verið frestað í annan fasa Samgönguáætlunar en sannleikurinn er sá að tvöföldun Reykjanesbrautar hefur verið í vinnslu í 25 ár! Sterkt ákall heimamanna í gegnum tíðina til þingmanna kjördæmisins virðist þar litlu máli hafa skipt.
Það skiptir höfuð máli fyrir atvinnusvæðið Suðurnesin, sem er stærsta byggð í suðri með 32 þúsund íbúa, að tvöföldun Reykjanesbrautar og endurbygging Nesvegar klárist sem allra fyrst.
Gríðarleg uppbygging í fiskeldi á Reykjanesi, fjölgun ferðamanna og margt fleira stendur og fellur með mannsæmandi innviðum á mesta vaxtarsvæði Íslands, svæðinu okkar.
Hættum að eltast við hræðsluáróður og stöndum frekar saman að því að byggja áfram upp Reykjanesbæ. Verum stolt af okkar svæði og eflum Suðurnesin í sameiningu.
Hjörtur M Guðbjartsson
Bæjarfulltrúi og formaður Atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar




