Þegar leikfélagið okkar toppar enn á ný
Það er stundum þannig að sýning verður meira en bara kvöldstund í leikhúsi. Hún verður upplifun sem snertir mann og fyrir mig var þessi sýning einmitt þannig. Ég er alin upp við tónlistina sem hljómar í verkinu og því fylgdu henni bæði góðar minningar og tilfinningar sem gerðu upplifunina enn sterkari. Það sem gerði hana þó sérstaklega áhrifamikla í mínum huga var hversu vel var farið með lögin.
Það eru stórkostlegir leik- og söngvarar í sýningunni sem skila hlutverkunum vel. Lögin lifna við og sagan er skemmtileg. Guðjón Smári og Margrét eru geggjuð og svo eru fleiri leik- og söngvarar sem hafa líka lengi verið í leikfélaginu eins og Birgitta, Tara, Arnar, Brynja, Sigríður, Helga og Burkni – þið eruð öll stórkostleg! Þvílíkar áskoranir og þið neglið þær!
Svo verður líka að nefna þau sem fullkomna senurnar í dansi og söng á sviðinu til dæmis í hlutverkum GaGa gellanna, Já-kórsins og skósveina Khashoggi. Þau sem vita ekki um hvað ég er að tala verða að mæta til að skilja. Dansinn skipar stóran sess og setja dansararnir einstakan svip á verkið.
Svo væri engin sýning án hljómsveitarinnar, svo það sé sagt. Þar eru tveir ungir gítarleikarar, Daníel og Nökkvi, sem spila í svona stóru verkefni í fyrsta sinn. Með þeim er Sveinbjörn kennari þeirra og Asdrubal á trommum og svo er það Smári sem leiðir tónlistina áfram og þeir eru í einu orði sagt geggjaðir.
Bak við tjöldin vinnur svo stór hópur fólks að því að allt gangi upp. Þar má meðal annars nefna að grafíska hönnunin er virkilega flott, sviðsmyndin og vinnan þar á bakvið, tæknimenn með ljós og hljóð, gegna lykilhlutverki og skapa andrúmsloftið sem umlykur sýninguna. Sólrún sýningarstjóri heldur utan um flæðið af öryggi og fagmennsku. Sminkur sem sjá um hár og förðun eru að stíga sín fyrstu skref í leikhúsi og fá tækifæri til að sýna hæfileika sína.
Allt þetta gerir sýninguna ógleymanlega og óska ég Kristínu Leu leikstjóra, Helgu Ástu danshöfundi og Smára tónlistarstjóra hjartanlega til lukku.
Vonir stjórnar leikfélagsins eru samkvæmt leikskrá þær að gestir njóti sýningarinnar í botn, upplifi hrifningu, stuð og gæsahúð. Ég get sagt ykkur að þetta var svo sannarlega mín upplifun þar sem ég hló og grét til skiptis og sýningin snerti mig djúpt.
Ég vil óska okkar magnaða leikfélagi og öllum þeim sem að sýningunni koma innilega til hamingju með stórkostlegt verk sem öll geta verið stolt af. Sjáumst aftur á laugardaginn.
Takk fyrir ykkur!
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar



