Byko
Byko

Aðsent

Sóknarfærin liggja í loftinu
Fimmtudagur 19. mars 2026 kl. 17:04

Sóknarfærin liggja í loftinu

Kjörtímabilið 2022–2026 í sveitarstjórnum landsins er senn á enda.

Suðurnesjabær er samfélag með mikla möguleika. Hér býr öflugt fólk, fjölbreytt atvinnulíf og mikill vilji til að byggja upp sterkt og gott samfélag til framtíðar.

Árangur sem við byggjum á

Á fyrri hluta kjörtímabilsins var Framsókn í meirihluta í Suðurnesjabæ á árunum 2022–2024. Margar góðar ákvarðanir voru teknar á þeim tíma og má þar meðal annars nefna:

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
  • Innleiðingu á siðareglum kjörinna fulltrúa í Suðurnesjabæ.
    • Innleiðingu á beinu streymi frá bæjarstjórnarfundum í Suðurnesjabæ til að tryggja aukið gagnsæi og lýðræði.
    • Lokið var við framkvæmdir við nýjan leikskóla í Sandgerði sem ber heitið Grænaborg.
    • Gjaldfrjálsar grunnskólamáltíðir barna voru innleiddar.
    • Frístundaakstur var settur á laggirnar fyrir unga iðkendur sem þurfa að ferðast milli byggðarkjarna til að sækja íþróttaæfingar.
    • Aukið fjármagn til viðhalds á leiktækjum sveitarfélagsins.
    • Hækkun heimagreiðslna til foreldra sem og styrks vegna vistunar hjá dagforeldrum.
    • Ákvörðun um mikilvægar framkvæmdir í íþróttahúsinu í Garði.
    • Ákvörðun um staðsetningu gervigrasvallar í Suðurnesjabæ til að efla íþróttastarf.
    • Tryggt fjármagn frá ríkinu vegna fylgdarlausra barna og undirritaður samningur milli ráðuneytisins og Suðurnesjabæjar um eflingu og stuðning barnaverndarþjónustu fyrir fylgdarlaus börn.
    • Lóðarframboð var aukið til muna.
    • Tryggð var heilbrigðisþjónusta í Suðurnesjabæ ásamt Willum Þór, þáverandi heilbrigðisráðherra.

Auk þessara þátta er margt fleira sem við komum að með beinum eða óbeinum hætti í nefndarstörfum okkar á vegum bæjarins.

Kyrrstaða sem þarf að rjúfa

Nú þurfum við að horfa til framtíðar og til þess að sú framtíðarsýn verði að veruleika verðum við líka að vera tilbúin að horfast í augu við stöðuna eins og hún er – og hafa kjark til að breyta henni.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Bæjarlista hefur starfað árin 2024–2026 og hefur mikil kyrrstaða einkennt ákveðin mál í sveitarfélaginu.

Verkefni sem hefðu átt að komast lengra eru enn á umræðustigi og tækifæri sem hefðu mátt nýta betur hafa farið fram hjá okkur.

Í ört vaxandi sveitarfélagi eins og Suðurnesjabæ hefur þetta raunverulegar afleiðingar fyrir íbúa, þjónustu og framtíðarþróun.

Það er því kominn tími til að rjúfa kyrrstöðuna og sækja fram.

Við þurfum skýra sýn á uppbyggingu sveitarfélagsins, markvissari ákvarðanatöku og meiri kraft í framkvæmdum.

Það snýst um að tryggja góða þjónustu fyrir íbúa, styðja við fjölskyldur og eldri borgara, efla skólastarf og skapa umhverfi þar sem atvinnulíf getur blómstrað.

Jafnframt þurfum við að taka til í rekstri bæjarsjóðs til að auka svigrúm til framkvæmda svo sveitarfélagið geti haldið áfram að vaxa.

Tækifærin fram undan

Suðurnesjabær stendur á lykilstað á Suðurnesjum. Með alþjóðaflugvöllinn í bakgarðinum, öflugt hafnarsvæði og vaxandi atvinnulíf eru hér tækifæri sem fá sveitarfélög búa við.

Til að nýta þau þurfum við metnað, skýra stefnu og vilja til að hrinda hlutum í framkvæmd.

Við eigum ekki að innleiða stórborgarstjórnsýslu sem er hæg og seinvirk. Smæð sveitarfélagsins er styrkur okkar sem við eigum að nýta.

Við eigum að geta tekið ákvarðanir hratt og af festu. Í dag ríkir hins vegar of mikil ákvörðunarfælni og samstöðuleysi innan núverandi meirihluta og það hefur tafið framgang mikilvægra mála.

Tækifærin fyrir atvinnulífið eru fjölmörg. Við þurfum að skapa fyrirtækjum góð rekstrarskilyrði með einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu.

Sveitarfélagið þarf einnig að vera tilbúið með atvinnulóðir svo hægt sé að bjóða fyrirtækjum að byggja upp starfsemi sína hér.

Skilaboðin eiga að vera skýr til fyrirtækja: Þið eruð velkomin í Suðurnesjabæ.

Jafnframt verðum við að leggja áherslu á að halda sköttum og gjöldum í lágmarki svo bæði íbúar og fyrirtæki geti dafnað.

Á sama tíma teljum við brýnt að leita leiða til að lækka álögur á íbúa og tryggja að rekstur sveitarfélagsins sé eins hagkvæmur og skilvirkur og mögulegt er.

Framtíð Suðurnesjabæjar ræðst af þeim ákvörðunum sem við tökum í kosningunum í vor.

Með samstilltu átaki getum við skapað sveitarfélag sem er sterkara, framsæknara og betur í stakk búið til að mæta þeim tækifærum sem fram undan eru.

Látum því ekki kyrrstöðuna ráða ferðinni.

Rjúfum hana – og sækjum fram. Setjum X við B þann 16. maí.

Anton Guðmundsson
Oddviti B-lista Framsóknar og óháðra í Suðurnesjabæ