Aðsent

Af hverju ég valdi Viðreisn
Fimmtudagur 19. mars 2026 kl. 17:55

Af hverju ég valdi Viðreisn

Ákvörðun um að fara í framboð í sveitarstjórn snýst ekki aðeins um vilja til þátttöku, heldur líka um það með hverjum maður kýs að starfa og hvaða gildi maður vill standa fyrir. Fyrir mig var það skýr niðurstaða að velja Viðreisn.

Ég er 38 ára, fæddur og uppalinn í Keflavík. Að mennt er ég húsasmíðameistari og síðar lauk ég námi í byggingarfræði. Undanfarin 9 ár hef ég starfað á verkfræðistofum þar sem ég hef komið að ýmsum verkefnum,  allt frá ástandsmati mannvirkja til skipulags, útboða og eftirliti með framkvæmdum.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Sú reynsla hefur kennt mér að góðar ákvarðanir byggja á fagmennsku, ábyrgð og langtímahugsun. Þegar slíkt vantar verður niðurstaðan oft dýrari fyrir vikið og verri til skamms tíma. Þess vegna tel ég mikilvægt að sömu sjónarmið ráði för í stjórnsýslu sveitarfélaga eins og Reykjanesbæ.

Í starfi mínu og í samtölum við íbúa hef ég séð hversu mikilvægt það er að hlustað sé á fólk og að ákvarðanir séu teknar í samráði við þá sem þær snerta. Gagnsæi, traust og trúverðugleiki verða ekki til af sjálfu sér, þau þarf að byggja upp markvisst.

Það er einmitt þessi nálgun sem heillar mig við Viðreisn. Áherslan á fagleg vinnubrögð, skýra sýn, ábyrga fjármálastjórn og trúverðugleika fellur vel að minni reynslu og því hvernig ég tel að sveitarfélög eigi að virka.

Sem faðir tveggja barna finn ég sterkt fyrir því hversu mikil áhrif ákvarðanir sveitarfélagsins hafa á daglegt líf. Hvort sem það snýr að skólum, íþróttaaðstöðu, skipulagi eða nærumhverfi. Það skiptir máli hvernig þessum hlutum er staðið og vil ég  sjá uppbyggingu sem er skynsöm, sjálfbær og þjónar okkur íbúum til lengri tíma.

Ég vil leggja mitt af mörkum til að Reykjanesbær verði sveitarfélag sem byggir á trausti, samráði og ábyrgum ákvörðunum. Það er grunnurinn að betra samfélagi og þess vegna stend ég með Viðreisn.

Davíð Skarphéðinsson

Höfundur skipar 2.sæti á lista Viðreisnar í Reykjanesbæ.