Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ samþykktur
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ var samþykktur á vel sóttum fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ á Hótel Keflavík í gærkvöldi. Um það bil hundrað fulltrúar í fulltrúaráðinu sóttu fundinn og var tillaga uppstillingarnefndar samþykkt einróma, segir í tilkynningu.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Vilhjálmur Árnason, nýkjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins, fluttu tölu á fundinum og Sigurgeir Rúnar Jóhannsson, formaður uppstillingarnefndar, lagði fram tillögu uppstillingarnefndar.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir komandi kosningar lítur svona út:
-
Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.
-
Margrét Þórarinsdóttir, yfirflugfreyja og bæjarfulltrúi.
-
Kristján Pétur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Konvin.
-
Alexander Ragnarsson, húsasmíðameistari, umsjónarmaður fasteigna hjá Aðaltorgi og bæjarfulltrúi.
-
Guðbergur Reynisson, framkvæmdastjóri Cargo flutninga og bæjarfulltrúi.
-
Sunna Gunnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
-
Ásdís Ólafsdóttir, sjálfbærnisstjóri Alvotech.
-
Logi Þór Ágústsson, viðskiptafræðinemi og frístundaleiðbeinandi.
-
Ólöf Steinunn Lárusdóttir, vörumerkjastjóri Blue.
-
Gunnar Felix Rúnarsson, landamæravörður og fyrrverandi kaupmaður.
-
Hermann Borgar Jakobsson, laganemi og þjónustufulltrúi hjá Geysi.
-
Helga Guðrún Sigurðardóttir, húsasmiður.
-
Tryggvi Þór Bragason, leiðsögumaður og húsasmíðameistari.
-
Alma Guðnadóttir, gæða- og innleiðingarstjóri / QC engineer
-
Guðmundur Steinarsson, vaktstjóri og íþróttafræðingur.
-
Axel Ingi Auðunsson, lögfræðinemi og einstaklingsráðgjafi hjá Íslandsbanka.
-
Berglind Ragnarsdóttir, rekstrar- og nýsköpunarverkfræðingur.
-
Jón Már Sverrisson, vélfræðingur og rafvirki hjá HS orku.
-
Ragnar Már Ragnarsson, flugmaður Icelandair.
-
Harpa B. Sævarsdóttir, eigandi Plús ehf.
-
Hjörleifur Stefánsson, framkvæmdastjóri Nesraf.
-
Margrét Sanders, bæjarfulltrúi og fráfarandi oddviti.







