Kísilverið verður rifið
Lokað á frekari þungan iðnað í Helguvík. Reykjanesbær kaupir stóran hluta lóðar kísilversins
„Allt bæjarráð var sammála um að taka kauptilboðinu og vonumst við til að sú samstaða haldist í bæjarstjórn. Þegar það liggur fyrir mun Reykjanesbær kaupa stóran hluta af lóð kísilversins og mannvirkið innan lóðarinnar verður rifið,“ segir Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, í samtali við Víkurfréttir.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt kauptilboð sveitarfélagsins í lóðina Stakksbraut 9 í Helguvík. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs 19. febrúar síðastliðinn. Seljandi er Helguvík Investment. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar tekur kauptilboð í lóðina 3. mars næstkomandi.
Stakksbraut 9 er lóð kísilversins í Helguvík. Á lóðinni standa mannvirki með fasteignamat upp á tæpa 2,2 milljarða króna og brunabótamat upp á tæpa 5,3 milljarða króna.
„Reykjanesbær hefur þegar lokað á möguleikann í deiliskipulagi Helguvíkur á frekari þungaiðnaði og mun sorglegri sögu kísilvera í Helguvík ljúka formlega. Ég er ákaflega spennt fyrir því að ná þessum áfanga, að Reykjanesbær fái aftur til sín landið í Helguvík og geti skipulagt það til framtíðar,“ segir Guðný Birna og bætir við:
„Þetta verður okkar samfélagi til mikilla heilla og óvissan um hvað gerist næst á lóðinni hverfur. Þetta er búið að vera áralangur óvissutími með alls konar hugmyndum um hvað þarna verður en Reykjanesbær hefur verið skýr með þá afstöðu að íbúarnir okkar hafi litla þolinmæði fyrir öðru kísilveri en við vitum öll hvernig sú sorgarsaga fór.
Nú eru tæp níu ár síðan United Silicon lokaði og alveg kominn tími til að draga hér línu í sandinn. Það er gleðilegt að við munum ekki brenna um 80 þúsund tonnum af kolum og losa 400 þúsund tonn af koldíoxíð árlega frá verksmiðjunni. Nú verða bjartir tímar fram undan í Helguvíkinni okkar þar sem við losnum við þessar byggingar og horfum saman til uppbyggingar framtíðar,“ segir Guðný Birna, forseti bæjarstjórnar.






