Fyrrverandi íbúar Grindavíkur geta sótt um að kjósa í bænum – frestur til 1. apríl
Alþingi hefur samþykkt bráðabirgðalög sem heimila fyrrum íbúum Grindavíkur að sækja um að vera teknir á kjörskrá í sveitarfélaginu fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 16. maí 2026.
Breytingin nær eingöngu til þeirra sem höfðu lögheimili í Grindavík 9. nóvember 2023 en eru ekki með lögheimili í sveitarfélaginu núna. Þeir sem eru með lögheimili í Grindavík þurfa því ekki að sækja um.
Umsóknarfrestur rennur út 1. apríl og á að skila inn umsókn á vef Þjóðskrár. Umsóknin er rafræn og þarf að nota rafræna innskráningu, annað hvort með Auðkennisappinu eða rafrænum skilríkjum í síma.
Þeir sem uppfylla skilyrðin um búsetu 9.11.2023, ásamt almennum skilyrðum um kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum, fá staðfestingu á kosningarétti í Grindavík þegar umsókn hefur verið send inn.
Tekið er fram að umsókn um að vera tekinn á kjörskrá í Grindavík telst afsal á kosningarétti í lögheimilissveitarfélagi.
Þeir sem ekki hafa tök á að sækja um rafrænt geta sent erindi á netfangið [email protected] og fengið leiðbeiningar um annað umsóknarferli.
Hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 515-5300 eða með tölvupósti á [email protected]



