Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Umbót sameinast Sjálfstæðisflokknum í Reykjanesbæ
Föstudagur 27. febrúar 2026 kl. 10:07

Umbót sameinast Sjálfstæðisflokknum í Reykjanesbæ

Umbót í Reykjanesbæ hefur tekið þá ákvörðun að leggja niður framboðið og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og mun því ekki bjóða fram aftur.

Umbót hefur á yfirstandandi kjörtímabili átt einn bæjarfulltrúa í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, Margréti Þórarinsdóttur. Þar áður sat hún sem oddviti Miðflokksins í bæjarstjórn 2018-2022. Með henni ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn nefndarmenn Umbótar, þau Gunnar Felix Rúnarsson, Jón Már Sverrisson og Harpa Sævarsdóttir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokkunum.

„Það er skýrt ákall um breytingar í Reykjanesbæ. Til að þær verði að veruleika þurfum við að sameina kraftana og stilla saman strengi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nýlega kosið sér öflugan oddvita, Vilhjálm Árnason, í fjölmennasta prófkjöri í sögu Reykjanesbæjar. Málefnaáherslur Umbótar og Sjálfstæðisflokksins fara saman í flestum grundvallaratriðum. Við teljum því rétt að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í þeirri viðleitni að ná fram þeim breytingum sem bæjarbúar kalla eftir. Bæjarbúar í Reykjanesbæ eiga skilið öfluga forystu og skýra sýn,“ segir Margrét Þórarinsdóttir.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Sjálfstæðisflokkurinn og Umbót hafa starfað saman í minnihluta bæjarstjórnar á þessu kjörtímabili. Samstarfið hefur einkennst af málefnalegri og traustri samvinnu og markvissu aðhaldi gagnvart meirihlutanum. Flokkarnir hafa ítrekað lagt fram sameiginlegar tillögur og sýnt í verki að þeir deila skýrri framtíðarsýn fyrir Reykjanesbæ. Áherslur þeirra fara saman á lykilsviðum, svo sem ábyrgri fjármálastjórn, hertri stefnu í útlendingamálum, öflugri mennta- og atvinnuuppbyggingu, skynsemi í skipulagsmálum, meiri stuðning við íþróttahreyfinguna og lægri álögum á heimili og fyrirtæki.

Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, fagnar ákvörðuninni.

„Það er mikill liðsstyrkur í því að fá Umbót og þeirra öfluga fólk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta er skýrt merki um að breið fylking er að myndast um breytingar í Reykjanesbæ. Kosningarnar í vor eru meðal þeirra mikilvægustu í langan tíma. Við ætlum að tala upp bæinn okkar, styðja við fjölskyldur og fyrirtæki og tryggja að grunnþjónustan sé í lagi. Sveitarfélagið á ekki að gera allt, en það sem það tekur sér fyrir hendur á það að gera vel og af ábyrgð,“ segir Vilhjálmur.

Í kvöld verður tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ lögð fyrir fulltrúaráðið á fundi á Hótel Keflavík klukkan 19:30.