Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Lítil eftirspurn eftir frumkvæði
Ingvar Eyfjörð hjá Aðaltorgi í Reykjanesbæ fór nokkuð mikinn í gagnrýni á opinbera kerfið og það væri lítil eftirspurn í frumkvæði. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 26. febrúar 2026 kl. 11:31

Lítil eftirspurn eftir frumkvæði

Atvinnurekandi og frumkvöðull þungorður á efnahagsfundi Íslandsbanka

Í skugga kólgubakka var yfirskrift fundar Íslandsbanka um efnahagsmál á ParkInn hótelinu í gærmorgun. Yfirskriftin lýsir í raun kólnun í hagkerfinu á þessu nýbyrjaða ári þar sem flestar hagtölur hafa verið að lækka nema verðbólga.

Keflvíkingurinn Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka, opnaði fundinn og sagði nýtt ár bera merki um tímabundna kólnun en þó væri ekki ástæða til svartsýni. Hún sagði að starfsemi Íslandsbanka í Reykjanesbæ hefði vaxið mikið á undanförnum árum samhliða vexti svæðisins og næmi hlutdeild hans á Suðurnesjum 40%. „Við erum með frábært starfsfólk og bjóðum nýja viðskiptavini velkomna,“ sagði hún.

Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur í greiningardeild Íslandsbanka, rýndi í helstu tölur efnahagslífsins í nýrri þjóðhagsspá. „Við sjáum fram á erfiðara ár og gerum ráð fyrir hægum hagvexti, m.a. vegna bakslags í útflutningsgreinum og vegna áhrifa hárra raunvaxta en það eru bjartari tímar fram undan. Þetta mun færast á betri veg á næstu tveimur árum,“ sagði hún en kólnun hafi hafist á síðasta ári með hækkun vaxta og fleiri þáttum sem hafi haft áhrif.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Hún nefndi að hagvöxtur myndi aukast aftur á næstu tveimur árum. Ísland væri kvikt hagkerfi sem hreyfðist hratt. Fram undan væri mesta atvinnuleysi í langan tíma, laun væru áfram að hækka vegna samninga sem gilda til 2028, óvissa væri í ferðaþjónustunni en þó væri von á miklum fjölda ferðamanna í sumar vegna almyrkva, og þá væri fjárfesting minni í ár vegna vaxtastigs og stöðunnar á íbúðamarkaði. „Laun hafa verið að hækka um 8% á ári undanfarin ár og kaupmáttur launa hefur haldið velli í ólgusjó og heimilin hafa það betra,“ sagði Bergþóra.

Verðbólga væri enn þrálát og yfir markmiðum Seðlabankans. Hún mun þó líklega hjaðna með vorinu þó að enn sé nokkuð langt í 2,8% sem eru markmið Seðlabankans 2027. Hún sagði líklegt að krónan myndi veikjast hægt og rólega á næstunni og gæti numið 5-6% á næstu mánuðum og ári. Íbúðaverð mun áfram verða lágt en hækka hægt og rólega með lægri vöxtum.

„Hlutirnir hreyfast mjög hægt. Þá virðist vera lítil eftirspurn eftir frumkvæði. Ríkið er sífellt að taka meira til sín. Það er alltaf að verða flóknara að vera með fólk í vinnu,“

Aðaltorg í Reykjanesbæ hefur staðið fyrir metnaðarfullri uppbyggingu á svæðinu, sem er skammt frá Keflavíkurflugvelli, frá árinu 2016. Hann lýsti yfir áhyggjum af frekari skattaálögum og þyngslum í opinbera kerfinu. „Hlutirnir hreyfast mjög hægt. Þá virðist vera lítil eftirspurn eftir frumkvæði. Ríkið er sífellt að taka meira til sín. Það er alltaf að verða flóknara að vera með fólk í vinnu,“ sagði Ingvar þungorður en Aðaltorg hefur byggt upp myndarlegan kjarna þjónustufyrirtækja og er með vegleg fasteignaáform í bígerð en þau eru nú í óvissu. Aðaltorg hefur gengið í gegnum mörg áföll frá stofnun þess en fyrsta verkefnið var mjög stórt, bygging hótels sem var tilbúið í upphafi heimsfaraldurs en hann og fleiri áföll hafa verið áskoranir fyrir fyrirtækið. Aðaltorg vann að því að opnuð yrði einkarekin heilsugæsla sem gekk eftir þrjú ár og hefur starfsemin gengið afar vel og eru á tólfta þúsund manns skráðir þar. Í framtíðarmúsíkinni eru íbúðabyggingar, hjúkrunarheimili og fleira sem Ingvar segir að sé nú í óvissu.

Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur í greiningardeild Íslandsbanka, rýndi í helstu tölur efnahagslífsins í nýrri þjóðhagsspá.

Fjölmennt var á fundinum á Park Inn hótelinu.

Sighvatur Gunnarsson, útibússtjóri hefur stýrt Íslandsbanka með góðum árangri undanfarin ár. Mikil aukning hefur verið í starfseminni.