Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Frístundastyrkurinn skilar aukinni þátttöku
Föstudagur 27. febrúar 2026 kl. 07:31

Frístundastyrkurinn skilar aukinni þátttöku

– meiri fjölgun meðal erlendra barna

Þátttaka barna í Reykjanesbæ í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi hefur aukist jafnt og þétt með nýtingu frístundastyrksins og var komin í 64,1% árið 2025. Þetta kemur fram í bókun meirihluta bæjarstjórnar sem Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) lagði fram á fundi bæjarstjórnar 17. febrúar, í umræðu um uppgjör frístundastyrksins fyrir árið 2025.

Samkvæmt bókuninni sem fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar lögðu fram hefur þátttaka barna á aldrinum 4–18 ára hækkað úr 57,9% árið 2022 í 64,1% árið 2025. Sérstaklega er bent á mikla aukningu í þátttöku erlendra barna, sem fór úr 28,4% árið 2022 í 43,2% árið 2025.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Meirihlutinn segir þróunina mjög jákvæða og telur niðurstöðurnar sýna að frístundastyrkurinn sé að skila tilætluðum árangri. Markmið sveitarfélagsins sé að sem flest börn taki þátt í skipulögðu starfi, enda sé það öflug forvörn og geti stuðlað að betri líðan, félagsfærni og virkri þátttöku í samfélaginu.

Í bókuninni er einnig tekið fram að meirihlutinn muni áfram styðja aðgerðir sem auka aðgengi allra barna að fjölbreyttu og uppbyggilegu frístundastarfi í Reykjanesbæ.