Fréttir

Farþegi handtekinn og viðbragðsáætlun vegna flugverndar virkjuð
Miðvikudagur 25. febrúar 2026 kl. 13:18

Farþegi handtekinn og viðbragðsáætlun vegna flugverndar virkjuð

Tilkynning um grunsamlegan hlut á athafnasvæði flugverndar á Keflavíkurflugvelli barst síðdegis í gær. Við nánari skoðun reyndist ekki stafa hætta af umræddum hlut sem var merktur sem farangur, segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum.

Eigandi farangursins var handtekinn um borð flugvélar en hann var á leiðinni úr landi.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Viðbragðsáætlun vegna flugverndar var virkjuð tímabundið til að tryggja öryggi starfsfólks og farþega. Málsatvik eru í rannsókn.