2000 íbúar í Vogum – samfélag í sókn
Nú er svo komið að við erum að verða 2000 íbúar í Vogum og við gætum allt eins hafa náð þeim áfanga þegar þessi orð eru birt. Það er svo sannarlega merkilegur áfangi í sögu sveitarfélagsins og skýr staðfesting á því að samfélag okkar er í sókn.
Fyrir heimsfaraldurinn, í byrjun árs 2020, voru íbúar sveitarfélagsins um 1300 talsins. Á um sex árum hefur íbúum því fjölgað um 700 manns, sem jafngildir um 54% fjölgun. Um er að ræða gríðarlegan vöxt á stuttum tíma sem fá sveitarfélög á landinu hafa upplifað með eins skörpum hætti.
Slíkur vöxtur er ekki sjálfgefinn og endurspeglar þá staðreynd að Vogar eru eftirsóknarverður staður til að búa á. Hér vilja fjölskyldur festa rætur og hér sjá fyrirtæki tækifæri.
En vöxtur er ekki markmið í sjálfu sér. Markmiðið er sterkt samfélag þar sem fjölskyldur blómstra, atvinnulíf dafnar og samheldni ríkir í samfélaginu. Þess vegna þurfum við að gæta þess að vera áfram skynsöm í uppbyggingunni. Vöxtur má aldrei verða stjórnlaus. Hann þarf að vera markviss og ábyrgur.
Á þessum tímamótum er þó gott að staldra aðeins við og huga að því sem hefur tekist vel og að hverju þurfi að gæta í okkar sveitarfélagi til að bæði mæta núverandi vexti og undirbúa okkur fyrir áframhaldandi sókn.
Treysta innviði sveitarfélagsins
Innviðir eru burðarás samfélagsins og þegar íbúum fjölgar á jafn skömmum tíma og raun ber vitni er lykilatriði að uppbygging haldist í hendur við þróunina. Það er lykilatriði að tryggja að skóla- og leikskólamál, íþróttaaðstaða, samgöngur og önnur grunnþjónusta þróist í takti við samfélagið.
Hlúa að og efla þjónustu við íbúa
Gott samfélag er ekki metið út frá íbúafjölda heldur lífsgæðum og þá getur þjónustustig innan sveitarfélagsins skipt miklu máli. Þjónusta sveitarfélagsins þarf að vera aðgengileg, skilvirk og í takti við þarfir og vilja íbúa. Um leið skiptir máli að fjölbreytt þjónusta og verslun dafni innan sveitarfélagsins svo íbúar geti sótt sem mest í sitt nærumhverfi.
Styrkja atvinnulífið innan sveitarfélagsins
Sjálfbær vöxtur byggir á sterku atvinnulífi og verðmætasköpun. Við þurfum að skapa aðstæður þar sem fyrirtæki geta vaxið og ný störf orðið til. Með skýru skipulagi, fyrirsjáanleika og jákvæðu viðhorfi til atvinnusköpunar getum við aukið verðmætasköpun innan sveitarfélagsins og styrkt grunninn bæði til skemmri og lengri tíma.
Tryggja aðlögun og samheldni íbúa
Samfélag styrkist ekki sjálfkrafa við fjölgun íbúa og getur fjölgunin í sjálfu sér skapað áskoranir við að tryggja samheldið samfélag. Það þarf því að rækta samfélagið, tryggja að nýir íbúar upplifi sig velkomna og að íbúar Voga sem hafa byggt samfélagið upp í áraraðir finni áfram tilgang sinn og virðingu innan sveitarfélagsins. Öflugt samfélag byggist upp á samvinnu og samheldni og hún verður til þegar fólk upplifir að það skipti máli og hafi rödd.
Það hefur margt jákvætt verið gert á síðastliðnum árum, misserum og vikum til að mæta vexti sveitarfélagsins. En við megum aldrei staðna. Við eigum öll að vilja taka stærri og markvissari skref og hlúa enn betur að samfélaginu okkar. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda áfram að byggja upp samfélag sem stenst bæði kröfur dagsins í dag og væntingar morgundagsins.
Björg Ásta Þórðardóttir
Íbúi í Sveitarfélaginu Vogum





