Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Einar Jón Pálsson gefur ekki kost á sér sem oddviti D-listans í Suðurnesjabæ
Miðvikudagur 25. febrúar 2026 kl. 09:56

Einar Jón Pálsson gefur ekki kost á sér sem oddviti D-listans í Suðurnesjabæ

Einar Jón Pálsson, forseti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar og oddviti D-listans, hefur tilkynnt uppstillingarnefnd Sjálfstæðismanna og óháðra í Suðurnesjabæ að hann muni ekki gefa kost á sér til að leiða listann í sveitarstjórnarkosningunum sem fara fram laugardaginn 16. maí.

Í yfirlýsingu segir Einar að ákvörðunin hafi verið tekin „eftir vandlega íhugun“ og að hann hafi tilkynnt hana uppstillingarnefnd sl. mánudag. Hann rifjar upp langan feril í sveitarstjórn og segir að hann hafi setið í bæjarstjórn í 24 ár, þar af verið oddviti listans síðustu 16 ár og forseti bæjarstjórnar í 14 ár.

„Ég hef haft mikla ánægju af því að starfa í sveitarstjórn og fengið tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið okkar,“ segir Einar í yfirlýsingunni. Hann bætir við að starfið hafi einnig fært honum „allt það góða fólk sem maður hefur fengið að kynnast á þessu ferðalagi“.

Einar óskar félögum sínum velfarnaðar fyrir komandi kosningar og segist ætla að styðja nýjan oddvita og listann áfram. „Að sjálfsögðu mun ég styðja og aðstoða nýjan oddvita sem og listann allan,“ segir hann. Sveitarstjórnarkosningar fara fram um allt land 16. maí 2026.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk