Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Brúa kynslóðabilið í Vogum
Miðvikudagur 25. febrúar 2026 kl. 10:00

Brúa kynslóðabilið í Vogum

Í vetur hafa elstu börn Heilsuleikskólans Suðurvalla í Vogum og áhugasamir í smíðahóp á vegum félagsstarfs aldraðra í Álfagerði verið í skemmtilegu samstarfi.

Börnin hafa komið í litlum hópum og búið til fugla úr tré undir leiðsögn smíðahópsins. Þetta hafa verið þó nokkrar heimsóknir og hafa heppnast mjög vel.

Nú eru fuglarnir tilbúinir og búið að setja upp skemmtilega sýningu í anddyri Álfagerðis sem mun standa út febrúar.
Þess má geta að verkefnið hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja í haust.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Brúa kynslóðabilið í Vogum