Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Mannlíf

Eldsnöggur „Pokémon“ gerir dyrabjölluat í Tjarnahverfi
Myndin með færslunni er gervigreindarútgáfa af atburðum dagsins, enda stranglega bannað að birta myndir úr dyrabjöllumyndavélum opinberlega, svo því sé haldið til haga.
Þriðjudagur 17. febrúar 2026 kl. 17:41

Eldsnöggur „Pokémon“ gerir dyrabjölluat í Tjarnahverfi

Það eru ennþá til börn sem eru úti að leika sér og eru uppátækjasöm. Þannig vekur íbúi í Tjarnahverfi í Innri Njarðvík athygli á uppátækjasömum „Pokémon“ sem er hlaupandi á milli húsa og dinglandi dyrabjöllum í hverfinu.

Eins og nútímafólki sæmir eru myndavéladyrabjöllur komnar á flest hús þannig að uppátækjasamir eru myndaðir í bak og fyrir við iðju sína.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

„Maður gerir ekki þennan hrekk á þau hús sem eru með myndavélabjöllu,“ skrifar íbúi í hverfishópinn og notar tækifærið og hrósar barninu með þessum orðum:

„Þú ert samt mjög fljótur að hlaupa, mátt eiga það,“ og notar jákvæð „tjákn“ í lok færslunnar sem hefur fengið jákvæð viðbrögð með „Haha“-tákni fésbókarinnar.