Nærmynd: Læt fólk og atburði ekki hafa áhrif á skapið
Nafn: Hjörleifur Már Jóhannsson
Árgangur: 1981
Búseta: Njarðvík
Hverra manna ertu og hvar uppalinn? Ræturnar liggja í ýmsar áttir, til Vestmannaeyja, Sandgerðis, Hafnarfjarðar, Keflavíkur og Njarðvíkur en ég er fæddur og uppalinn í Keflavík.
Starf/nám: Kirkjuvörður í Keflavíkurkirkju og Trúbador
Hvað er í deiglunni? Eftir strembið ár í fyrra er ég mjög feginn því að það sé bara mest lítið í deiglunni þessa dagana! Ég er að koma mér fyrir í nýrri vinnu og tímann utan vinnu nota ég allan í faðmi fjölskyldunnar.
Hvernig nemandi varstu? Ég var held ég mjög þægilegur nemandi, gerði það sem mér var sagt þegjandi og hljóðalaust, var oftast stilltur og prúður og átti auðvelt með nám.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Margt eftirminnilegt en stóra fermingargjöfin, borðtölvan, sem beðið hafði verið eftir með mikilli eftirvæntingu, stendur líklega upp úr.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Er ennþá ekki búinn að komast að því hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór en finnst ég vera á réttri hillu í dag.
Áttu einhverja sérstaka fyrirmynd? Á yngri árum leit ég mikið upp til körfuboltahetjunnar minnar, David Robinson, en í dag eru konan mín og börnin mínar helstu fyrirmyndir.
Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? GI Joe, He-Man og Lego voru aðal leikföngin mín sem barn.
Besti ilmurinn? Besti ilmurinn sem ég get ímyndað mér er lyktin af konunni minni en ef spurt er um ilmvatn eða rakspíra er það Armani Code.
Á hvernig bíl lærðir þú fyrir bílprófið? Man ekki bílinn sem ég lærði á.
Á hvaða bíl fórstu fyrsta rúntinn eftir prófið og með hverjum? Fyrsti bíllinn var sporttýpa af Daihatsu Charade. Hvítur, pínulítill, með topplúgu! Geggjaður bíll! Fyrsti rúnturinn var tekinn með pabba.
Hvernig slakarðu á? Góð tónlist, göngutúrar og lestur er besta leiðin til að slaka á.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Sjónvarp er sem betur fer hægt að horfa á eftir hentisemi í dag, en þegar allt var í línulegri dagskrá gat ég orðið háður ýmsu sjónvarpsefni, átti t.a.m. langt tímabil þar sem ég missti aldrei af Neighbours.
Uppáhalds vefsíða? Íþróttasíður Vísis og Mbl eru uppáhalds vefsíðurnar ásamt nba.com.
Hvað heldurðu að skjátími þinn sé mikill á hverjum degi að jafnaði? Maður er alltaf að reyna að takmarka blessaðan skjátímann, hann rokkar svolítið en ég vil helst að hann fari ekki yfir 2 tíma á dag.
Besta bíómyndin? Ég er mikill bíómyndakarl og eru margar Marvel myndir í uppáhaldi. Ég á margar uppáhalds bíómyndir en ef ég neyðist til að nefna eina sérstaklega þá er það Forrest Gump.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Ég hef verið svo heppinn að uppáhalds liðið mitt í NBA deildinni, San Antonio Spurs, hefur laðað að sér einstaklega flotta íþróttamenn. Á eftir David Robinson var það Tim Duncan og nú er það Victor Wembanyama, sem er geggjaður!
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Ég segi klárlega fyndnustu brandarana á mínu heimili og skemmtilegustu sögurnar!
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Chili Con Carne er mín sérgrein í eldhúsinu.
Hættulegasta helgarnammið? Hættulegasta helgarnammið er klárlega kúlurnar frá Góu!
Hvernig er eggið best? Ég er þekktur fyrir að skella í mig 5-6 hráum en þau bragðast nú klárlega betur elduð. Egg eru og hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér, elska þau hvernig sem þau eru elduð.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Ég reyni af fremsta megni að láta fólk og atburði ekki hafa áhrif á skapið og næ oftast að fara brosandi í gegnum daginn. Það sem reynir einna helst á taugarnar eru leti og léleg þjónusta.
Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun? „Það sem kemur mér mest á óvart í mannlegri tilveru er að maðurinn fórnar heilsu sinn til að eignast peninga.
Svo fórnar hann peningunum til ná aftur heilsu sinni.
Á sama tíma er hann svo spenntur fyrir framtíð sinni að hann nýtur ekki augnabliksins.
Afleiðingin er sú að hann lifir hvorki í nútíð né framtíð.
Og hann lifir eins og hann muni aldrei deyja – og svo deyr hann án þess að hafa lifað“
(Dalai Lama)
Hver er elsta minningin sem þú átt? Elsta minningin eru glefsur af því þegar ég opnaði alla jólapakkana um miðja nótt, nóttina fyrir aðfangadag.
Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Það er engin fræg manneskja sem ég myndi vilja prófa að vera í einn dag, mér finnst hræðileg tilhugsun að vera einhver annar en ég sjálfur. En ég væri alveg til í að prófa að vera konan mín í einn dag. Við eyðum ævinni í að reyna að skilja maka okkar til fulls og það myndi mögulega takast í eitt skipti fyrir öll ef þetta væri hægt.
Hver er uppáhalds bókin þín og rithöfundur? Uppáhalds rithöfundar uppá síðkastið eru Camilla Läckberg og Henrik Fexeus. Skemmtilegir krimmar.
Orð eða frasi sem þú notar mikið? Frasi: „It´s good... it´s GOOOOD“ (Jim Carrey í Bruce Almighty).
Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð? Ghandi, Dalai Lama og Móðir Teresa
Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færðu þig? Ég held það væri mjög hættulegt að komast aftur í tímann, við myndum aldrei hætta að fara til baka og reyna að breyta einhverju. En ætli ég myndi ekki bara prófa að fara lengst aftur fyrir Krist ef ég gæti og þyrfti að prófa.






