ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Mannlíf

Fjör hjá eldri borgurum í Vogum
Þriðjudagur 10. febrúar 2026 kl. 09:44

Fjör hjá eldri borgurum í Vogum

Félag eldri borgara í Vogum tók á móti formanni og framkvæmdarstjóra Landssambands eldri borgara nú á dögunum. Vel var mætt til þessa vinafundar okkar sem haldinn var í Álfagerði og virkilega góð kynning og upplýsingar sem þau Björn Snæbjörnsson formaður (Höfðhverfingur með meiru) og Oddný Árnadóttir framkvæmdastýra deildu með eldri borgurum í Vogum. Frá þessu er greint á Vogar.is og birtar myndir frá samkomunni.

Formaður FEBV er Ragnar Ásgeirsson: [email protected] og síminn hjá honum er 824 4862 ef þið viljið frekari upplýsingar. Þá er Álfagerði félagsstarf á Facebook og þar eru settar inn auglýsingar og tilkynningar.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Hér fylgir hlekkur á upptöku af málþingi sem Landssambandið hélt í október í fyrra og við hvetjum ykkur til að horfa á: https://www.leb.is/viburir/ofbeldierogn

F.v. Ragnar Ásgeirsson, formaður eldri borgara í Vogum, Oktavía Ragnarsdóttir, umsjónamaður félagsstarfs eldri borgara, Hólmfríður J. Árnadóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs, Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara og Oddný Árnadóttir, framkvæmdastjóri LEB.

Margt um manninn í Álfagerði

 

Ragnar Ásgeirsson, formaður Félags eldri borgara í Vogum

Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara

Góðar veitingar á boðstólum