Sigldi upp í grjótgarð og maður féll í sjóinn
Einn maður féll í sjóinn þegar hann reyndi að aðstoða við björgun fiskibáts sem hafði siglt upp í grjótgarð við Sandgerðishöfn á fimmtudagskvöld. Að sögn lögreglu slapp maðurinn vel frá atvikinu.
Fjölmargir viðbragðsaðilar komu að björgun fiskibátsins Fönix eftir að hann sigldi á talsverðri ferð upp í grjótgarð við Sandgerðishöfn. Tilkynnt var um slysið til lögreglu á áttunda tímanum um kvöldið en þá var björgunarsveit komin á staðinn og enginn í hættu.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa jafnframt verið upplýst um það. Frekari upplýsingar um atvikið eru ekki að svo stöddu.
Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar komið var með Fönix til Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur daginn eftir atvikið í Sandgerði.





