Enn skelfur við Eldey
Jarðskjálftahrinan sem hófst við Eldey um hádegisbil í gær, 7. febrúar, heldur áfram. Hafa nú mælst rúmlega 300 skjálftar í hrinunni og stendur hún enn yfir þó að ákafinn hafi aðeins minnkað frá því í gær.
Stærsti skjálftinn hingað til mældist 3,4 að stærð kl 16:50 í gær en Veðurstofu hafa ekki borist tilkynningar um að hann hafi fundist í byggð.
Jarðskjálftahrinur við Eldey eru fremur algengar, þær eru alla jafnan vegna flekahreyfinga en aukin spenna á Reykjanesskaga og umbrot þar síðan 2020 hafa einnig aukið tíðni jarðskjálftahrina á svæðinu.
Síðast var hrina við Eldey 3. desember 2025.





