Fréttir

Ljúka sorgarsögu með niðurrifi kísilverksmiðju
Tillaga að breytingu á lóð, sem á að gefa skýrari mynd af því hvernig svæðið gæti litið út án kísilverksmiðjunnar í Helguvík.
Föstudagur 27. febrúar 2026 kl. 15:08

Ljúka sorgarsögu með niðurrifi kísilverksmiðju

Reykjanes Investment hyggst hefja eina umfangsmestu framkvæmd fyrirtækisins til þessa, sem felur meðal annars í sér niðurrif kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík, byggingar sem lýst hefur verið sem einni flóknustu sem reist hefur verið í Reykjanesbæ. Fyrirtækið segir verkefnið fela í sér verulega áhættu, en markmiðið sé að „ljúka þeirri sorgarsögu“ sem verksmiðjan hafi verið fyrir bæjarbúa og sveitarfélagið.

Framkvæmdin er liður í samningi sem bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum 19. febrúar síðastliðinn, milli Reykjanes Investment og Reykjanesbæjar.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Í tilkynningu Reykjanes Investment segir að fyrirtækið sé stolt af því að taka þátt í að hreinsa til á svæðinu og telur að með góðu samstarfi sé hægt að byggja upp sterkt og stöðugt atvinnulíf í kringum höfnina í Helguvík.