Magnað að fylgjast með súlukasti við Keflavíkurhöfn
Það var magnað að fylgjast með súlukastinu við Keflavíkurhöfn fyrr í dag. Súlan er núna í stórum hópum við ströndina og Hafsteinn Guðnason, gamall skipstjóri sem býr við Víkurbrautina, sagði í samtali við Víkurfréttir þar sem hann fylgdist með súlukastinu að engu líkara væri en allur súlustofninn úr Eldey væri mættur til Keflavíkur.
Meðfylgjandi myndskeið var tekið við Keflavíkurhöfn í hádeginu í dag, 9. febrúar.

