Járngerður 17. fundur 9. febrúar 2026: Fundað með íbúum Grindavíkur á miðvikudag
Járgerður hefur boðað til íbúafundar á miðvikudaginn 11 feb. kl. 17.30-18.30 í Gjánni.
Þorvaldur Þórðarson verður í Kvikunni sama dag kl. 10-12.
Járngerður fundaði í morgun stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis um fyrirkomulag sveitarstjórnarkosninga í vor og lagði áherslu á að þeir sem áttu lögheimili í Grindavík þegar rýming hófst fái kost á að kjósa og taka þátt í kosningunum.
Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður Járngerðar, sagði, á 17. upplýsingafundi Járngerðar, sem fór fram á Teams fyrr í dag, fundinn hafa verið góðan og taldi að frumvarp um málið myndi líklega hljóta brautargengi.
Sigurður A. Kristmundsson hafnarstjóri sagði á fundinum að góður gangur væri í höfninni, bátar væru að landa og fiskaðist vel.
Þá voru skólamál og öryggismál til umræðu ásamt ýmsu öðru, eins og sjá má í upptöku frá fundinum sem er í spilara með fréttinni.

