Halaveðrið á næstu sagnastund á Garðskaga
Sagnastund á Garðskaga laugardaginn 7. febrúar 2026 kl 15:00.
Á þessum degi fyrir 101 ári fór djúp lægð óblíðum höndum um vestan- og norðanvert landið. Togarar voru að veiðum á svokölluðum Halamiðum sem eru djúpt norðvestur af Ísafjarðardjúpi. Á þeim tíma var það álit uppi að nær ómögulegt væri að togarar þess tíma færust í opnu hafi. Halaveðrið leiddi í ljós að svo einfalt var þetta ekki. Orðið Halaveður er enn lifandi í íslensku máli.
Egill Þórðarson fyrrum loftskeytamaður á togurum og hjá Gæslunni er sagnastundinni að góðu kunnur. Egill hefur tekið saman efni varðandi Halaveðrið frá öðru sjónarhorni en áður hefur verið gert. Egill stóð að sýningu í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju árið 2020 og aftur 2025 um Halaveðrið. Hann kynnir ítarefni frá sýningunni.
Allir velkomnir á veitingahúsið Röstina á Garðskaga, ekki aðgangsgjald. Veitingahúsið verður opið og léttar veitingar í boði.
Áhugamenn um sagnastund á Garðskaga.






